10 mánaða stúlka hlaut skelfileg örlög

Það er sumt í þessum heimi einfaldlega of hræðilegir til þess að maður nái einu sinni að hugsa þá til enda. Það á vel við í þessu tilfelli. Hin 10 mánaða Emmaleigh Barringer, frá Vestur Virginíu, lést þann 5. október síðastliðinn eftir að hafa verið nauðgað og misþyrmt af kærasta móður sinnar, Benjamin Taylor (32).

EP-161009740

Atvikið átti sér stað aðfaranótt 3. október á meðan allir aðrir á heimilinu voru í fastasvefni.

„Ég hef aldrei upplifað neitt þessu líkt síðan ég man eftir mér,“ sagði Tony Boggs yfirlögregluþjónn á svæðinu.

Amanda Leigh Adkins, móðir Emmaleigh, vaknaði milli 4:30 og 5 um nóttina og fann litla barnið sitt, liggjandi í blóði sínu, í kjallaranum og hringdi hún strax í 911.

Þegar lögreglan kom í húsið, sá hún Benjamin vera að þurrka einhvern blett úr nára sínum, og komst lögreglan fljótt að því að það var blóð. Í kjallaranum fann lögreglan teppi og föt sem voru öll í blóði. Benjamin sagðist ekkert vita um það hvernig atvikið átti sér stað, sagðist hafa verið að þvo þvott og allt í einu hafi hann dottið út. Barnið lést síðar á gjörgæsludeild. Læknirinn sem sá um stúlkuna sagði að hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi, verið hrist og lamin í andlitið sem leiddi til dauða hennar. Benjamin er í fangelsi og mun vera kærður fyrir kynferðislegt ofbeldi og morð. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi en flestir eru á þeirri skoðun að fangelsi sé of gott fyrir hann.

Farinn er í gang undirskriftalisti sem hefur líka verið sendur á Hvíta húsið, þar sem farið er fram á að Benjamin verði líflátinn. Þeir sem að listanum standa vilja að maðurinn verð hengdur á almannafæri. Ef 100 þúsund undirskriftir nást á 30 dögum mun stjórn Obama forseta þurfa að líta á listann og taka afstöðu til hennar.

Undirskriftalistinn á netinu 

SHARE