Er þetta upphafið að endalokunum?

Raunveruleikaþátturinn Keeping Up With the Kardashians hefur hrapað svakalega í áhorfi seinustu vikur, en hundruðir þúsunda hafa hætt að horfa á þættina sem sýndir eru á E!

Nýjum botni var náð í áhorfi seinasta sunnudag og eru margir farnir að giska á að þættirnir verði fljótlega teknir af dagskrá, en einungis 1,4 milljónir manna horfðu á þáttinn.

Sjá einnig: Kim Kardashian vill ekki láta „photshop-a“ sig

 

Það vekur furðu að ekki fleiri hafi horft á þáttinn, því í þættinum á undan lýsti Kim því, þegar hún var rænd í París.

 

„Þetta er ömurlegt ,“ sagði heimildarmaður RadarOnline. „Þetta voru stórir þættir og áttu að draga áhorfendur að. Þetta er mjög slæmt.“

„Öll fjölskyldan er að fara yfir um núna. Þau vita ekki hvað þau eiga af sér að gera ef þættirnir yrðu teknir úr dagskrá,“ sagði annar heimildarmaður RadarOnline.

 

SHARE