Aðgerð gerð á barni sem var enn hálft í móðurkviði

Keri McCartney var komin 23 vikur á leið, þegar hún, maðurinn hennar og fjögur börn þeirra fóru í sónarmyndatöku. Þau fóru öll saman til að fá að vita kyn barnsins, en tilhlökkunin breyttist snögglega í martröð, þar sem í ljós kom að ófædda barnið var í lífshættu.

Sjá einnig: Hún tekur systur sína með í sónar og kemur henni ALDEILIS á óvart

Læknar sáu á skjánum að barnið var með æxli á stærð við greipaldin og var það með miklu blóðflæði, svo það var ljóst að barnið myndi ekki lifa meðgönguna af, ef ekkert yrði gert í málinu. Aðgerð var því nauðsynleg, ef barnið ætti að eiga möguleika á því að lifa.

Læknar gerðu það sem var óhugsandi. Þau skáru Keri upp og tóku legið út og gerðu aðgerð á barninu meðan það var hálft inni í leginu ennþá.  Þau síðan settu barnið aftur inn í legið, þar sem hún hélt áfram að vaxa og dafna í 10 vikur í viðbót.

SHARE