Æðislega gott ítalskt túnfisksalat

Þetta ótrúlega ljúffenga túnfisksalat er fengið af blogginu hennar Tinnu BjargarSalatið er ólíkt hinu hefðbunda túnfisksalati og gjörsamlega dansar við bragðlaukana. Ég mæli eindregið með því að þú fylgir Tinnu á Facebook og missir aldrei af uppskrift frá henni.

Sjá einnig: Túnfiskpastaréttur – Uppskrift

IMG_5008

1 dós túnfiskur

1/2 krukka svartar ólívur

1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar

1/2 rauðlaukur

2 msk majones

  • Skerið smátt ólífur, sólþurrkaða tómata og rauðlauk og blandið saman við túnfisk og majones.
  • Berið fram með kexi eða snittubrauði.

Sjá einnig: Túnfisksalat með kotasælu og avókadó – Uppskrift

SHARE