Bjóða upp frægar flugur til bjargar flóttafólki

 

AUR appið og Rauði krossinn á Íslandi í samstarfi við rakarastofuna Barber mun á næstu dögum halda uppboð á veiðiflugum til styrktar góðu málefni. Allur ágóði af uppboðinu mun renna til Rauða krossins sem safnar fyrir björgunaraðgerðum í Miðjarðarhafi þar sem flóttafólk leggur sig í mikla hættu til að komast til Ítalíu frá Norður-Afríku. Síðan í byrjun ágúst sl. hafa björgunarskip Rauða krossins og hjálparsamtakanna MOAS bjargað á fimmta þúsund manns og hlúð að hundruðum til viðbótar.

 

Strákarnir á rakarastofunni Barber klipptu hárið á nokkrum þekktum einstaklingum og létu gera veiðiflugur úr hári hvers og eins. Hægt verður að bjóða í flugur sem hnýttar eru úr hári Ásgeirs Trausta, Andra Snæs Magnasonar Dj Margeirs, Andreu Rafnar o.fl.

andrea

Uppboðið hefst í dag á Facebook-síðu AUR appsins en AUR appið fagnar 1. árs afmæli um þessar mundir.

 

Veiðiflugurnar eru níu talsins og verður hægt að bjóða í fyrstu fluguna í dag. Hvert uppboð stendur í sólarhring og er eingöngu hægt að taka þátt með því að senda rukkun í gegnum AUR appið með þeirri upphæð sem fólk vill bjóða.

 

SHARE