Drykkur dagsins er með mangó og ástaraldinum

Oft gefur maður sér ekki tíma til að borða ávexti yfir daginn en þumalputtareglan er sú að maður eigi að borða 5 ávexti á hverjum degi. Ég reyni mitt besta en yfirleitt næ ég varla 1 ávöxt á dag, því miður.

Ég var staðráðin í því að bæta úr þessari döpru neyslu minni á ávöxtum og hafði verið að hugsa um þetta í nokkra daga. Á þessum dögum rakst ég á þessa drykki í verslun. Þvílíka snilldin! Ég keypti mér nokkra svona drykki og ákvað að drekka allavega einn á dag í viku. Bara til að prófa.

Ég fann það strax á fyrsta degi að ég var að gera góða hluti. Þvílík orka og vellíðan! Mig vantaði greinilega einhver vítamín í kroppinn á mér því á degi 3 vaknaði ég með einhverskonar tilhlökkun í drykkinn sem beið mín inni í ísskáp. Núna get ég ekki startað deginum án þess að fá mér einn svona ávaxta smoothie eða eitt glas af djúsnum.

Þessa vikuna ætlum við að hafa Innocent viku.

Einn drykkur á dag sem ég ætla að sýna ykkur og segja ykkur frá.

 

Drykkur dagsins í dag er

mango

Þessi drykkur er með bragði af mangó- og ástaraldinum og inniheldur 2 af þeim 5 ávöxtum sem þú átt að fá á hverjum degi, í 250 ml. Í drykknum eru samt brot af 6 ávöxtum hvort sem þú trúir því eða ekki. Fullt af C vítamínum og dásamlega bragðgóður.  

 

Innihald:

Screen Shot 2015-06-27 at 8.34.13 PM

Biti af ástaraldin – Biti af ferskju – Safi úr lime

Screen Shot 2015-06-27 at 8.34.24 PM

1 epli – 1/3 banani – 1/4 mangó – Safi úr appelsínu

 

Við ætlum að gefa heppnum lesanda eina 6 stk pakkningu af þessum safa. Vertu með, með því að skrifa hér fyrir neðan hver er þinn uppáhaldsávöxtur

 

SHARE