Endurspeglast viðhorf í hamingjuóskum og gjöfum

„Mig langaði að færa vinkonu minni kort og óska henni til hamingju með stjúpdótturina. Ég fann hinsvegar engin kort í bókabúðinni, ótrúlegt eins og stjúpfjölskyldur eru algengar“

Yfirleitt ríkir spenna og eftirvænting hjá væntanlegum foreldrum, vinum og ættingjum þeirra  þegar von er á fjölgun í fjölskyldunni. Velt er fyrir sér kyni og útliti barnsins og sjálfsagt þykir að upplýsa þá sem þá um leið og barnið er fætt. Jafnvel um leið og hríðir byrja.

Yfirleitt eru vinir og ættingjar tilbúnir til að hjálpa til við undirbúninginn. Vaggan er sótt upp á háaloft, vagninn í kjallaranum og sængin inni í skáp svo taka megi sem best á móti nýjum fjölskyldumeðlimi.  Eðlilegt  þykir að verðandi foreldrar  undirbúi komu barnsins og sæki námskeið um fæðingu og þroska þess. Þrátt fyrir góðan undirbúning og eftirvæntingu getur eðlilegur kvíði gert vart við sig hjá þeim varðandi fæðinguna, heilbrigði barnsins og hvernig til takist að sinna foreldrahlutverkinu þar þar að kemur.

Sjá einnig: Börn skipta foreldrum ekki út fyrir stjúpforeldra

Að vita hvað sé eðlilegt og við hverju megi búast er gagnlegt og dregur úr kvíða.  Það er þó aldrei hægt að undirbúa allt og getur ósjálfbjarga ungabarn reynt á samband foreldra, sérstaklega þegar svefnlausra nætur eru margar. Stokka þarf upp fyrri venjur bæði innan og utan heimilisins og koma á verkaskiptingu sem hentar nýjum aðstæðum.

Vinir og ættingjar færa síðan móður og barni gjafir á sængina og ekki telja þeir það eftir sér að koma með fleiri pakka við skírn eða í nafnaveislu barnsins. Sumri stofna bankabók í nafni þess í þeirri von að tryggja megi fjárhagslega afkomu barnsins í framtíðinni.  Löngunin til að umvefja barnið er fölskvalaus.

Viðbrögð vina og ættingja þegar stjúpbörn bætast í hópinn eru ekki jafn fyrirsjáanleg. Sumir taka þeim fagnandi og finnst fjölskyldan ríkari en áður, á meðan öðrum finnst það miður og tala um foreldri með „pakka“.  Þeir er jafnvel ekki vissir um hvort barnið tilheyri fjölskyldunni. Fæstir spyrja um fæðingardag stjúpbarnsins en venjulega er fólk forvitið um aldur þess.  Sjaldnast er stjúpbörnum færðar gjafir eða heillaóskir  í tilefni þess að þau verða hluti af lífi stjúpforeldra sinna og eini „pakkinn“ sem fer á milli eru þau sjálf.  Tilfinningar barnanna sjálfra geta verið blendnar. Sum eru ánægð með að foreldrar þeirra séu hamingjusamir og eru glöð með að vera hluti af „alvöru“ fjölskyldu á meðan önnur eru ósátt og höfðu gert sér jafnvel von um að foreldrar þeirra tækju saman að nýju.

Hvernig eða hvort eigi að bregðast við á einhvern sérstakan hátt þegar stjúpforeldri eignast stjúpbarn eða stjúpbarn eignast stjúpforeldri er óvíst í hugum margra.  Kannski vegna ráðandi hugmynda í samfélaginu um hvað  telst eftirsóknarvert og hvað ekki.

Ef marka má hillur bókaverslana þá er engin ástæða til að selja hamingjuóskakort fyrir nýbakaða stjúpforeldra eða „fæðingardagbók“ stjúpbarnsins. Hinsvegar má finna vörur sem ala á fordómum gagnvart stjúpfjölskyldum og sérstaklega stjúpmæðrum,  eins og barbídúkkan í líki vondu stjúpmóðurinnar.  Einnig litabækur, servéttur, glös,  pappadiska, töskur, pennaveski, strokleður og dvd-myndir, þar sem Öskubuska, Hans og Gréta, Mjallhvít og dvergunum sjö koma við sögu.  Í ljósi þessa þarf líklega engan að undra þó fimm ára gutti hafi spurt hvort að stjúpmæður og skrímsli væru í alvöru til eða vera hissa á stúlkunni sem neitaði að fara heim til skólasystur sinni þar sem hún bjó með pabba sínum og stjúpu.

Sjá einnig: Börn í stjúpfjölskyldum þurfa samveru við foreldra

Ljóst er að fordómar geta mótast  snemma á lífsleiðinni og þeir eru skaðlegir. Óhætt er að fullyrða að stjúpmæður verða sérstaklega fyrir barðinu á þeim.  Vert er að hafa í huga að stjúpfjölskyldur og fjölskyldur einhleypra foreldra hafa sömu verkefni og aðrar fjölskyldur en að auki hafa þær verkefni sem eru sérstök fyrir þær.  Börnin sem þeim tilheyra eiga oftast tvö heimili sem taka þarf tillit  til.  Það er einfaldlega flóknara að vera í stjúpfjölskyldu eða einn á vakt sem einhleypt foreldri.  Það er vert að hafa í huga að fordómar beinast ekki aðeins að öðrum þeir geta líka beinst gagnvart okkur sjálfum og sjálfsmynd okkar.  Það er því ómetanlegt fyrir þær mörg þúsund stjúpfjölskyldur sem og fjölskyldur einhleypra foreldra  hér á landi að finna stuðning og viðurkenningu samfélagins[VH1] .

Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi MA

Upplýsingar um námskeið og fleira er að finna á stjuptengsl@stjuptengsl.is

Fleiri flottar greinar um stjúptengsl má finna á heimasíðu Stjúptengsla

stjuptengsl

SHARE