Fæðutegundir sem á að forðast á meðgöngu

Fyrstu mánuðir meðgöngu eru þeir sem eru einna viðkvæmastir fyrir móður og fóstur. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að vissar fæðutegundir auka hættuna á fósturláti fyrstu mánuðina. Þá fæðu er best að forðast eins mikið og mögulegt er, því þær geta haft slæm áhrif á móður og barn.

Sjá einnig:13 fæðutegundir sem þú ættir aldrei að borða

blogger-image--1760768079

Sjá einnig: Fæðutegundir sem þú átt ekki að borða fyrir kynlíf

Skelfiskur

Skelfiskur og annar fiskur er ekki hættulegur í sjálfu sér, en hann getur verið skaðlegur ef hann er ekki eldaður vel. Skelfiskur sem er ekki fyllilega eldaður getur innihaldið mikið af bakteríum og valdið sýkingum. Þrátt fyrir að hann sé vel eldaður geta líka leynst í honum mengun, svo ef þú vilt neyta skelfisks á meðgöngu skaltu tala við ljósmóður eða lækni áður.

Papaya

Hrátt papaya er afar slæmt fyrir ófríska konu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að papaya getur virkað líkt og getnaðarvörn og er óþroskað papaya einna hættulegast fyrir fóstur á fyrstu þroskastigunum. Það getur einnig leitt til samdrátta í leginu.

Ananas

Þrátt fyrir að við teljum ávexti vera afar holla fyrir okkur, er ananas mjög slæmur fyrir konur á meðgöngu. Hann er þekktur fyrir að koma fæðingu af stað og hefur ananas verið notað í þeim tilgangi í gegnum tíðina. Ananas inniheldur efni sem kallast bromelain, sem veldur samdráttum í leginu, líkt og þau áhrif sem papaya getur haft á konur. Mælst er með því konur forðist að borða ananas á fyrstu mánuðum meðgöngunnar.

 

[nextpage title=”Fleiri fæðutegundir”]

 

 

Ostur

Ekki eru margar ostategundir sem geta verið skaðlegar fyrir fóstur, en áhættuþættir tengdir osti eru nógu margar. Allar mjólkurvörur sem eru framleiddar úr ógerilsneyddri mjólk geta verið skaðlegar. Ef mjólk er ógerilsneydd inniheldur hún fleiri bakteríur og getur þar af leiðandi fundist í ostinum þínum. Haltu þig frá vissum ostategundum á fyrstu mánuðum meðgöngunnar.

Dýralifur

Lifur er þekkt fyrir að vera góð fyrir mann og inniheldur mikið að próteinum og næringarefnum sem eru okkur nauðsynleg. Lifur getur þó verið hættuleg fyrir ófrískar konur. Hún getur verið full af eiturefnum, ef hún er fengin úr sýktu dýri, ásamt því að hún er full af kólestróli.

Unnar kjötvörur

Hvort sem þú ert ófrísk eða ekki, er best að forðast allar unnar kjötvörur. Þær eru afar óhollar fyrir mann og þá sérstaklega fyrir ófrískar konur. Unnar kjötvörur geta verið fullar af rotvarnarefnum og öðrum efnum sem geta leitt til fósturláts. Margar konur fá mikla löngun í vissa fæðutegund á meðgöngu, en best er að forðast unnið kjöt eða forðast það alfarið ef það er möguleiki.

Te og kaffi

Kaffi inniheldur mikið af koffíni, sem er þekkt fyrir að halda manni vakandi. Te inniheldur mikið af andoxunarefnum, en ef þú drekkur of mikið af tei, getur það leitt til blóðleysis. Kaffi hefur einnig þvaglosandi áhrif og getur leitt til of mikils álag á hjartakerfi ófrískra kvenna. Það er sterklega mælst til þess að konur drekki sem minnst af te og kaffi á meðgöngu.

Heimildir: womendailymagazine.com

SHARE