Gómsæt veislubrownie með vanillurjóma

Þessi uppskrift er fengin af sælkerablogginu hennar Tinnu Bjargar. Þessi kaka er agalega gómsæt og er kjörið að bjóða upp á hana núna í sumarblíðunni. Ég hvet ykkur eindregið til þess að fylgjast með Tinnu á Facebook og fá þannig allar hennar uppskriftir beint í æð.

Sjá einnig: Frönsk súkkulaðikaka með karamellukeim

IMG_8632

Veislubrownie

Brownie-botn

115 g smjör

230 g suðusúkkulaði

150 g sykur

50 g púðursykur

3 egg

1 tsk vanilludropar

80 g hveiti

2 msk kakó

1/4 tsk salt

Bræðið saman í skál yfir heitu vatnsbaði smjör og grófsaxað suðusúkkulaði. Kælið súkkulaðiblönduna í um 10 mínútur. Bætið við einu eggi í einu ásamt vanilludropum. Blandið hveiti, kakó og salti saman við deigið. Sníðið bökunarpappírsörk ofan í botninn á smelluformi og smyrjið formið vel með smjöri eða Pam-spreyi. Hellið brownie-deiginu í formið og bakið neðarlega í ofni við 175° í 30-35 mínútur. Kælið kökubotninn í forminu og setjið hann síðan á kökudisk.

Sjá einnig: Unaðsleg frönsk súkkulaðikaka með Dumle karamellukremi

Vanillurjómi

400 ml léttþeyttur rjómi

1/2 – 2/3 Royal vanillubúðingur

Hrærið vanillubúðingsdufti saman við léttþeyttan rjóma og smyrjið jafnt yfir brownie-botninn. Athugið að rjóminn er mjög fljótur að stífna og því þarf að hafa hraðar hendur.

Sjá einnig: Hættulega góð bananaostakaka

Ávaxtaskreyting

2 kiwi

1 askja jarðarber

1/2 askja blabber

Afhýðið kiwi og skerið í sneiðar ásamt jarðarberjum. Raðið kiwi og jarðarberjum fallega yfir kökuna og fullkomnið verkið með bláberjum.

SHARE