Gott að fara ómótuð inn í námið

„Þetta er búið að vera langt ferli. Löng saga sem hefur tekið miklum breytingum,“ segir Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir fatahönnuður, sem útskrifaðist af fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands nú vor. Útskriftarverkefni Ólafar ber heitið Burakumin, sem er í raun niðuryrði um verkafólk frá ákveðnu svæði í Japan. En hún sækir einmitt innblástur sinn þangað.

Skapaði karakter

Vinna við verkefnið hófst fyrir jól, þá með því að skapa karakter og heilan heim í kringum hann. „Ég leitaði mér upplýsinga á netinu og fann bæ rétt fyrir utan Tókýó, sem enginn býr í lengur og búið er að taka út af korti, því Japanir skömmuðust sín svo mikið fyrir hann. Fólkið sem bjó þarna var kallað Burakumin og nafnið hefur fylgt afkomendum íbúanna alveg til dagsins í dag. Ég vildi að mín stelpa, minn karakter, væri þaðan. Hún er verkamaður í nútímamenningu þar sem glamúr og peningar ráða ríkjum. Hún er skemmtilega skrýtin kona sem gefur skít í væntingar annarra, það er enginn beautyfilter til í hennar lífi. Hún spáir ekki í reglum hvað varðar klæðaburð og lætur ekki segja sér hvað er við hæfi. Samsetningar hennar eru duttlungum háðar en verða óvænt praktískar og hagsýnar. Fegurðina sér hún í öllu og blandar óhefðbundnum fatnaði saman á ófyrirséðan og spennandi hátt. Hún stígur út fyrir staðalímyndina og kemur fram sem hún sjálf.“

Nútímaleg lína

Ólöf segist hafa reynt að fara eins djúpt og hún gat í að skapa karakterinn sinn og bakgrunn hans til að gera allt sem raunverulegast. Fatastíllinn var svo skapaður út frá því. „Ég ímyndaði mér það út frá hennar áhugamálum og starfi hvernig hún myndi klæða sig og þetta var útkoman,“ segir Ólöf og vísar til fatalínunnar.

Hún vonast til að geta gert eitthvað meira með verkefnið og jafnvel komið flíkum úr línunni í sölu. „Þetta er nútímaleg lína sem passar vel við það sem er að gerast í dag. Ég held að þetta vakið áhuga einhverra,“ segir Ólöf hógvær. Hún viðurkennir að vera ekki komin með plan varðandi framhaldið, enda ennþá að ná áttum eftir erfiða törn í náminu. „Ég er að byrja að hugsa næstu skref og skoða hvað er í boði. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt nám. Sérstaklega að fá að búa til svona heim og skapa sögu. Þetta er miklu dýpra en að búa bara til fallega flík.“

Það er ekki langt síðan áhugi hennar á fatahönnun kviknaði og hún fór með mjög ómótaðar hugmyndir inn í námið. „Ég var ekki með neina hönnun á bak við mig sem mér fannst mjög gott. Það hentaði mér allavega ágætlega að fara ómótuð inn í námið.“

Langar að byrja hjá litlu fyrirtæki

Þrátt fyrir að Ólöf sé ekki alveg búin að ákveða hvað hún ætlar að gera í framhaldinu, þá hefur hún ákveðnar hugmyndir. Hún vinnur nú að því að setja saman möppu með verkum sínum og sér fyrir sér að sækja um störf hjá minni fyrirtækjum erlendis. Hana langar frekar að byrja á því heldur að reyna að komast inn í stóru tískuhúsin. Byrja á stað þar sem samstarfsfélagarnir þekkja andlitin á hver öðrum.
Hún fékk þó nasaþefinn af hátískunni í París þegar hún var í starfsnámi á fyrsta ári. „Þar fékk ég að sjá hvað bransinn er stór og í raun allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér.“

Sýning á verkum útskriftarnema Listaháskóla Íslands stendur yfir til 8. maí í Listasafni Reykjavíkur.

SHARE