“Hann er skrímsli” – Fyrrum elskhugar Charlie Sheen kæra

Charlie Sheen hefur nýverið komið fram í sjónvarpsviðtali, þar sem hann segir frá því að hann er HIV smitaður. Leikarinn hefur verið með veiruna frá árinu 2011, en svo virðist sem hann hafi ekki sagt elskhugum sínum frá veirusýkingu sinni, þar sem nú þegar hafa fjórar konur komið fram og sagst ætla að kæra hann. Sheen segir að allar konurnar sem hann hafi sofið hjá frá því hann smitaðist hafi vitað af ástandi hans, en nú eru nokkrar konur að stíga fram og segja að hann hafi alls ekki sagt þeim hver raunin var.

Sjá einnig: Charlie Sheen berst við HIV

Bree Olson og Natalie Kenly hafa nú þegar lagt fram kæru, en heimildir segja að hann hafi ekki komist að smiti sínu fyrr en hann var hættur með Bree og var með Natalie. 6 aðrar konur hyggjast kæra leikarann fyrir að hafa haft með þeim kynmök án þess að segja þeim frá HIV smiti sínu. Bree Olson kallar Sheen skrímsli í viðtali og er vægast sagt skúffuð yfir ábyrgðarleysi glaumgosans.

Charlie segir að fyrrum eiginkonur hans, þær Denise Richards og Brook Mueller, hafi vitað af smitinu og hann sagði einnig elstu dóttur sinni Cassandra frá því nýverið.

Sjá einnig: Charlie Sheen trylltist á Feðradaginn: „Denise er hræðileg móðir!“

 

 

2E883C7400000578-3321991-Sheen_told_Matt_Lauer_that_he_had_told_people_that_he_trusted_hi-m-7_1447764708156

Viðtalið: Charlie Sheen talar við Matt Lauer í Today og segir að hann hafi einungis sagt þeim sem honum voru næstir frá HIV smiti sínu og hafi einnig borgað fjölda manns fyrir að þegja.

Sjá einnig: Charlie Sheen lét taka eftir sér hjá Conan O´Brien – Myndband

2E892AC800000578-3321991-image-a-42_1447774194477

Bree Olson er vitanlega í öngum sínum yfir fregnunum og hefur því lagt fram kæru á hendur fyrrum elskhuga sínum.

2E894EEA00000578-3321991-Bree_Olson-a-83_1447786168683

 

2E8731D600000578-0-image-m-10_1447762618067

 

2E8845FB00000578-3321991-Charlie_Sheen-m-94_1447786386068

 

2E84869500000578-3321991-image-a-82_1447786168662

 

 

SHARE