Hjálpumst að við að breyta heiminum – Mætum á völlinn!

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna vill að við fyllum völlinn þegar íslensku stelpurnar keppa þar á morgun. Hann sendi þennan póst á fjölmiðla og 70 fyrirtæki í dag. 

Þú getur breytt heiminum

Ég sendi þennan tölvupóst út á 70 fyrirtæki í dag…Deildu á alla sem þú þekkir og sendu á öll fyrirtæki á Íslandi!

Kæri stjórnandi,

Í dag ætlar þú og fyrirtækið þitt að hjálpa mér að breyta heiminum.

Ég heiti Siggi Raggi og hélt fyrir nokkru fyrirlestur fyrir starfsmenn eða stjórnendur í fyrirtækinu þínu. Fyrirlesturinn hét: Hvað þarf til að ná árangri? – Hugarfar sigurvegarans.

Í upphafinu á þeim fyrirlestri sagði ég að „það fyrsta sem maður þarf að gera til að ná árangri er að eiga sér draum“.

Á morgun klukkan 18.30 á Laugardalsvelli munu 18 landsliðskonur Íslands sjá æskudrauma sína um að komast í lokakeppni stórmóts rætast eða verða að engu.

Ísland spilar þá við Úkraínu úrslitaleik um að komast í lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða.

Nú ætla ég að hugsa eins og sigurvegari og biðja þig um greiða sem breytir heiminum…

Heimurinn sem þú ætlar að hjálpa mér að breyta er í huga þessara 18 stúlkna sem leika knattspyrnu fyrir íslenska kvennalandsliðið og dreymir um að komast í lokakeppni. Það eru 18 stelpur sem spila alltaf með hjartanu og fórna sér fyrir íslensku þjóðina. Þær hafa alist upp við að stelpur í fótbolta séu ekki jafn merkilegar og strákar. Það hefur meðal annars endurspeglast í því að mun færri koma að styðja þær heldur en strákana okkar.

Ég ætla því að biðja þig um að kaupa miða fyrir allt starfsfólkið þitt á A-landsleik Íslands og Úkraínu sem fer fram á morgun (fimmtudaginn 25.okt) kl 18:30 á Laugardalsvelli. Miðinn kostar bara 1.000 krónur.

Ég sendi þennan póst á 70 fyrirtæki og ef þið komið öll verður pottþétt uppselt!

Ég hef þjálfað kvennalandsliðið í 6 ár. Öll árin hefur mig dreymt um að stelpurnar fengju að upplifa það að spila fyrir framan fullan Laugardalsvöll en völlurinn tekur 10.000 manns í sæti.

Ég á sjálfur litla stelpu sem er að alast upp við það að íþróttir stúlkna fá ekki sömu athygli, umfjöllun og fjármagn og karlaíþróttir. Hver segir að heimurinn okkar þurfi að vera svoleiðis? Við erum föst í viðhorfum sem gamlar hefðir hafa mótað en það er hægt að breyta heiminum. Ég og þú getum það saman!

Venjulega koma á milli 3.000 og 4.000 manns á landsleikina okkar en mest hafa komið 6.000 manns á völlinn. En ég vil fá 10.000 manns! Með því að það verður uppselt á kvennalandsleikinn breytum við heiminum. Ekki bara hjá þeim 18 stelpum sem klæðast landsliðstreyjunni í leiknum. Heldur í huga allra lítilla stúlkna sem æfa íþróttir á Íslandi. Stelpurnar eru nefnilega jafn merkilegar og strákarnir. Innst inni vitum við að það er rétt. Ég ætla að taka þátt í að breyta heiminum og ég vona að þú gerir það líka.

Ég treysti á að þú kaupir miða og allir í fyrirtækinu þínu mæti á völlinn! Takk fyrir að hjálpa mér að breyta heiminum!

Sjáumst á vellinum.

Áfram Ísland!

Siggi Raggi

A-landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu

P.s. Þú kaupir miða með því að senda tölvupóst á Þóri framkvæmdastjóra KSÍ thorir@ksi.is, tilgreindu bara fjölda miða og þeir verða afhentir þér/fyrirtækinu þínu samdægurs. Sendu endilega cc á mig líka. Takk fyrir stuðninginn!

Landsleikurinn á morgun er úrslitaleikur um að komast í lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári.

Ef þú vilt breyta heiminum deildu þá þessum pósti út um allt. Sendu hann til allra fyrirtækja á Íslandi!

Siggi Raggi

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here