Humar í kampavínssósu – Uppskrift

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar í kampavínssósu.

1 kíló skelflettur humar
1 meðalstór laukur, fínsaxaður
2 matskeiðar smjör
2 matskeiðar olía
½ rauð og ½ græn paprika, skorin í teninga
Salt og pipar

Kampavínssósa:
2 desilítrar þurrt freyðivín
1 peli rjómi
Fiskikraftur
Kjötkraftur
Maizena mjöl til að þykkja

Aðferð fyrir Humar í kampavínssósu:

Sjóðið freyðivínið í potti ásamt rjómanum. Bætið krafti út í og þykkið með maizena. Kryddið með salti og pipar. Steikið humarinn upp úr smjöri og olíu á stórri pönnu ásamt lauknum. Kryddið. Hellið sósunni yfir og setjið paprikurnar út í. Látið þetta malla í eina mínútur. Berið fram með ristuðu brauði og smjöri.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here