Hún vaknaði eftir keisaraskurð með enga fætur

Ella Clarke (31) hélt að hún væri að fara í venjulegan keisaraskurð, en vaknaði þess í stað 6 dögum síðar án beggja fóta sinna.

Sjá einnig: Þið trúið ekki hvað fannst í maga hennar eftir keisaraskurð

Hún átti von á 8. barni sínu og fór í keisara, en þessi aðgerð átti að vera rétt eins og hver önnur slík aðgerð. Raunin varð því miður allt önnur fyrir þessa ungu konu, vegna þess að í kjölfar aðgerðarinnar þurfti að fjarlægja leg hennar í skyndi og ákváðu læknar að setja hana í dá. Í þessa daga sem hún var í dái, áttuðu læknar sig á því að á fimmta degi voru neðri fætur hennar búnir að missa allt blóðflæði. Í kjölfar þess tóku þeir þá ákvörðun að fjarlægja fætur hennar fyrir neðan hné.

Ella vaknaði síðan á 6. degi og vitanlega trúði ekki sínum eigin augum, en hún og eiginmaður hennar hyggjast höfða mál gegn spítalanum.

Ella og maður hennar vildu alltaf eignast mörg börn og ætluðu ekki endilega ekki að stöðva barneignir sínar við það 8. Hún hafði þó farið í annað hvort skiptið í keisara og í þessari síðustu meðgöngu, var henni sagt að fylgjan væri ekki á réttum stað vegna fyrri keisaraskurða og á 36. viku byrjaði að blæða hjá henni. Læknar tjáðu henni því að hún yrði að fara í enn annan keisaraskurð, en í miðri aðgerðinni varð svo mikil blæðing að taka þurfi ákvörðun um að fjarlægja leg hennar í skyndi.

Sjá einnig: Yndisleg keisarafæðing, barnið fær strax að fara til mömmu – Myndband

Hún var síðan færð á gjörgæslu á meðan dáinu stóð, en á þeim tíma mynduðust blóðtappar í fótum hennar með þeim afleiðingum að læknar fluttu hana í skyndi á skurðstofu. Eiginmanni hennar var tilkynnt um aðstæður og sagði læknum að gera það sem þeir gætu til að bjarga lífi hennar. Þegar Ella síðan vaknaði hélt hún að hún hafi verið að vakna úr enn örðum keisaraskurðinum og vænti þess að fá dóttur sína í fangið, en dóttir hennar var orðin 6 daga gömul og henni tjáð að hún yrði aldrei söm.

Sjá einnig:Barnsfæðing: Eitt af undrum veraldar

 

34BE93CE00000578-3615027-image-a-31_1464529537853

34BE93FC00000578-3615027-image-a-30_1464529530260

34BE932C00000578-3615027-image-a-15_1464529281991

34BE940C00000578-3615027-image-a-18_1464529367639

34BE931000000578-3615027-image-a-14_1464529238832

34BE942000000578-3615027-image-m-26_1464529434530

34BE942400000578-3615027-image-a-23_1464529394884

SHARE