Kjúklingur með grænmeti, núðlum og cashewhnetum að hætti Café Sigrún

Kjúklingur með grænmeti, núðlum og cashewhnetum
fyrir 4-5

Innihald
•    375 g þykkar hrísgrjónanúðlur eða aðrar núðlur sem ykkur finnst góðar
•    Hálfur stór kjúklingur, helst grillaður
•    1 stór gulrót, skorin í mjóar ræmur
•    2 paprikur (rauð og gul) skornar í mjóar ræmur
•    175 g mangetout (flatar, grænar belgbaunir sem maður getur borðað í hýðinu)
•    175 g baby mais
•    75 g cashewhnetur, þurrristaðar á pönnu
•    2 vorlaukar, saxaðir smátt
•    1 tsk sesamolía
•    1 msk kókosolía
•    Fersk coriander lauf til að skreyta með (má sleppa)

Fyrir sósuna:
•    1,5 msk maísmjöl (eða kartöflumjöl en einnig má nota arrow root)
•    1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt (eða marinn)
•    2 tsk ferskt engifer, saxað smátt
•    2 msk agavesíróp
•    6 msk tamarisósa
•    1 tsk Tabasco sósa (má sleppa og nota þá smá klípu af chilipipar eða cayenne pipar í staðinn)
•    1 gerlaus grænmetisteningur
•    450 ml af vatni

Aðferð
1.    Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og sigtið allt vatn frá. Látið í nokkrar sekúndur undir kalt, rennandi vatn. Setjið til hliðar.
2.    Hitið pönnuna (án olíu) og þurrristið cashewhneturnar í nokkrar mínútur eða þangað til þær eru orðnar gullbrúnar. Setjið til hliðar.
3.    Undirbúið sósuna: Setjið 450 ml af vatni í lítinn pott ásamt grænmetisteningnum og hitið aðeins þannig að teningurinn leysist upp. Blandið saman maísmjöli, tamarisósu, tabasco sósu og agavesírópi í litla skál og hellið í pottinn. Afhýðið engifer og hvítlauk og saxið smátt. Setjið allt í pottinn og hitið í um 30 mínútur við vægan hita eða þangað til sósan fer aðeins að þykkna (verður eins og þunnt síróp).
4.    Undirbúið nú annað hráefni: Ef þið notið ekki grillaðan kjúkling, hitið þá 1 tsk kókosolíu ásamt vatni á pönnu. Steikið kjúklinginn (skinnið ekki notað). Kælið og rífið kjötið í strimla. Setjið til hliðar.
5.    Afhýðið gulrótina og skerið í mjóa strimla.
6.    Skerið paprikur í helminga og fræhreinsið. Skerið svo í mjóar ræmur.
7.    Saxið vorlaukana smátt (ljósgræni og dökkgræni hlutinn notaðir).
8.    Hitið wok pönnu eða stóra pönnu þangað til hún verður brennandi heit.
9.    Takið til allt hráefni sem á að fara á pönnuna og setjið í litlar skálar nálægt eldavélinni.
10.    Setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna og hitið vel. Það ætti að rjúka úr pönnunni.
11.    Hitið gulrótarstrimlana í um 2 mínútur. Bætið papriku, mangetout og babymais saman við og hitið vel. Ef vantar vökva, notið þá vatn.
12.    Hrærið í sósunni og hellið henni yfir pönnuna.
13.    Sjóðið í um 3-4 mínútur.
14.    Bætið núðlunum og kjúklingnum við og hitið vel í 3 mínútur.
15.    Bætið cashewhnetunum við og blandið öllu vel saman.
16.    Berið fram í djúpum diskum ásamt prjónum.
17.    Hellið nokkrum dropum af sesamolíu yfir hverja skál.
18.    Skreytið með corianderlaufum ef þið viljið.

Gott að hafa í huga
•    Það er hægt að sleppa kjúklingnum og setja t.d. rækjur, kúrbít, eggaldin, sveppi (ferska eða þurrkaða) eða marinerað, stíft tofu.
•    Gerlausir grænmetisteningar fást í heilsubúðum (og stærri matvöruverslunum). Einnig má nota venjulega grænmetisteninga.
•    Nota má sojasósu í staðinn fyrir tamarisósu en athugið að sojasósan inniheldur hveiti.
•    Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
•    Nota má aðra olíu en kókosolíu, t.d. vínberjakjarnaolíu eða repjuolíu.

Birt með góðfúslegu leyfi Café Sigrún

Ísfugl logo 120x70 pix_transp[1]

SHARE