Marimekko fatnaður aftur kominn til Íslands – Myndir

Suomi PRKL! Design, finnska hönnunarbúðin á Laugavegi færir aðdáendum Marimekko góðar fréttir. Föt og fylgihlutir frá þessu vinsæla merki eru núna aftur fáanleg á Íslandi.„Þetta er okkar leið til að hefja HönnunarMars. Marimekko er best þekkta finnska  fatamerkið og það er mjög spennandi að geta haft það í boði fyrir viðskiptavini okkar” segir Satu Rämö, annar eigandi Suomi PRKL! Design.

Marimekko fatnaður og fylgihlutir komu í búðina í dag. Meðal þess í boði eru hinir klassísku Mari-randabolir fyrir konur og karla, einnig kjólar, töskur og  fylgihlutir frá nýjustu vor- og sumarlínunni.

„Við höfum rekið Suomi PRKL! Design búðina í Reykjavík í tæpt ár og hefur gengið vel. Til að fagna HönnunarMars vildum við breyta svolítið til og bæta finnskri fatahönnun við það sem við erum að bjóða upp á. Margir af okkar föstu viðskiptavinum hafa verið að spyrjast fyrir um Marimekko föt og við erum mjög ánægðar núna að geta loks glatt alla Marimekko aðdáendurna”, segir Maarit Kaipainen, annar eigangi verslunarinnar.

Marimekko var stofnað af Armi Ratia árið 1962. Hún skilgreindi Marimekko merkið sem „menningarlegt fyrirbæri”. Enn í dag bera mjög margir sterkar tilfinningar til merkisins.

Finnsk hönnun er sýnileg á margvíslegan hátt meðan á HönnunarMars stendur þessa vikuna: Design Forum Popup Shop sýnir finnska tískuvöru í versluninni KronKron, Aalto+Aalto hönnunarstofan er með sýningu í Grettisborg og Norræna húsið sýnir íslenskir og finnskir skartgripahönnuðir í Láð og lögur sýningunni.
SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here