Mexíkóskar chilli enchiladas – Uppskrift frá Lólý.is

Enn ein dásemdar uppskriftin frá Lólý.is 

Þessi réttur er svo ljúfur og góður og besta leiðin til að lýsa honum er að mér finnst hann faðma mann að sér. Þetta er svona réttur sem hægt er að elda fyrir alla í fjölskyldunni því það er svo auðvelt að gera hann ýmist sterkan eða bara hentugan fyrir alla. Eina sem þarf að gera er að setja það magn af chilli sem hentar hverjum og einum nú eða sleppa því en þá mæli ég með að þið kryddið með chillidufti og sleppið ferska chillinu. Njótið elsku vinir og ég vona að þessi réttur faðmi ykkur alveg eins og hann faðmar mig.

mexi


500 gr nautahakk
1 laukur smátt saxaður
2 hvítlauksrif pressuð
1 dl Heinz chillitómatsósa
1 msk óreganó
1/2 msk cumin
2 tsk salt
1-3 tsk chilliduft (eftir smekk)
1 bréf burritos krydd
1 krukka taco sósa
1 poki rifinn ostur
1 dós maísbaunir
8 tortilla kökur
2 msk fersk steinselja
2 rauðir chilli smátt saxaðir

Steikið laukinn og hvítlaukinn upp úr olíu í nokkrar mínútur og bætið þá nautahakkinu við og steikið vel. Bætið þá öllu kryddinu út í ásamt burrito mixinu og látið malla í 5 mínútur og hellið þá taco sósunni og chilli tómatsósunni út í, látið þetta síðan malla í 10 mínútur. Að lokum bætið maísbaununum út í og smátt söxuðum chilli, þar að segja ef þið viljið hafa þetta smá sterkt.
Hitið ofninn í 250°C og takið eina köku í einu og setjið hakk í miðjunna og rúllið upp hverri og einni og raðið í eldfast mót.  Dreifið ostinum yfir ásamt steinseljunni og hinum chillinum. En stundum finnst mér mjög gott að krydda aðeins yfir kökurnar áður en þær fara í ofninn með kóríander dufti. Setjið inn í ofn í rúmlega 10 mínútur eða þangað til osturinn er vel bráðnaður.

Gott er að hafa guacamole með þessu annað hvort heimagerða eins og uppskriftin er af hér á síðunni eða tilbúna úr dós, hrísgrjón og sýrðan rjóma.

 

SHARE