Ofurfæða

Superfood eða ofurfæða er matur sem inniheldur mun meira af góðum næringarefnum en annar. Stelpurnar á Nudemagazine tóku saman lista yfir þá ofurfæðu sem er hvað vinsælust núna.

chia

Chia-fræ er til dæmis hægt að nota í graut á morgnana eða út í hristinga. Þau innihalda mikið magn af omega, átta sinnum meira en lax og eru rík af kalsíum. Einnig er að finna í þeim fullt af trefjum og C-vítamíni. Chia-fræ eru með 20% prótein innihald.

seeds

Quinoa er ein besta glúteinlausa kolvetnisfæðan og hentar þ.a.l. vel þeim sem eru með glúteinóþol. Quinoa er ríkt af próteinum og trefjum en í því má einnig finna kalk og magnesíum. Það er hollara og gefur þér meira en t.d. brún grjón og kartöflur.

GReenKohlrabi

Hnúðkál verður vinsælla með hverjum deginum. Það er einhvers staðar á milli þess að vera hvítkál og rófa og bragðast mjög vel. Hnúðkálið er stútfullt af trefjum, kalíum og C-vítamíni. Kálið er einnig bólgu- og veirueyðandi.

súkk

Dökkt súkkulaði er auðvitað mjög bragðgott en er líka fullt af trefjum, járni, magnesíum og andoxunarefnum svo eitthvað sé nefnt. Það hefur jákvæð áhrif bæði á skap og heilsu. Dýfðu jarðarberjum ofan í dökk súkkulaði, settu það á gríska jógúrt og borðaðu í morgunmat eða nartaðu í það eintómt.

Lestu greinina í heild sinni hérna

nude-logo-nytt1-1

Tengdar greinar:

Ofurfæða – Matur sem er sniðugur út í Boozt

6 ástæður fyrir því að egg eru hollasta fæðutegund heims – Betri næring

7 óhollar fæðutegundir til að forðast eins og heitan eldinn – Betri næring

SHARE