Oreo skyrterta

Þessi æðislega girnilega skyrterta er frá Freistingum Thelmu 

Botn:
24 stk Oreo kexkökur
100 g smjör

Skyrkaka:
500 g KEA vanilluskyr
½ l rjómi
2 msk flórsykur (meira fyrir þá sem vilja sætari köku)
6 stk matarlímsblöð
½ dl mjólk
12 stk Oreo kexkökur

Toppur:
¼ l rjómi
4 stk Oreo kex (4-6 stk)
súkkulaðisíróp

Aðferð

Bræðið smjör og setjið í matvinnsluvél ásamt Oreo kexkökum og hakkið þar til kexið er fínmalað. Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, um 22 cm að stærð. Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og slétta úr því. Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest.

Skyrkaka

Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri. Setjið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél og hakkið þar til þær er orðnar fínmalaðar, blandið þeim saman við skyrblönduna og hrærið. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni. Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp. Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel. Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst. Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna. Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.

Toppur

Þeytið rjóma þar til hann stendur, sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar (t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna. Skerið Oreo kexkökur gróflega niður og setjið í miðjuna á kökunni ásamt súkkulaðisírópi. Skreytið kökuna með Oreo kexkökum að vild. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram. Auðvelt er að frysta skyrkökur í allt að 3 mánuði.

Freistingar Thelmu á Facebook

SHARE