Ótrúlegt – Andlit hennar rifnaði af en hún lifði

Stefanie Atkins (30) frá Ohio í Bandaríkjunum,  lenti heldur betur í honum kröppum þegar hún lenti í skelfilegu slysi á dögunum. Hún varð fyrir því að festa hár sitt í drifskafti í verksmiðjunni sem hún vinnur í, með þeim afleiðingum að andlit hennar og háls rifnaði upp. Blessunarlega lifði hún slysið af, en afleiðingarnar eru skelfilegar, eins og sjá má á myndunum.

Sjá einnig: Læknar þurftu að fjarlægja andlit hennar

Rokið var með Stefanie í skyndi á sjúkrahús, þar sem hún þurfti að gangast undir 7 klukkustunda aðgerð til þess að festa andlit hennar aftur á sinn stað. Læknar þurftu að græða á hana skinn og taka æðar úr fæti hennar til að laga blóðflæðið í andlitinu, en gert er ráð fyrir að hún eigi langan veg framundan og komi til með að þurfa að fara í fjölmargar aðgerðir til að laga skaðann.

Ber drifsköft eru skelfilega hættuleg og þau ber að varast undir öllum kringumstæðum, hver sem þú ert.

Sjá einnig: Hún er að verða sköllótt af hárlengingunum

 

354CB63A00000578-3642635-Stephanie_Adkins_pictured_is_in_hospital_in_Columbus_Ohio-a-19_1465989485255

354CB37400000578-3642635-Stephanie_Adkins_is_recovering_in_hospital_after_last_week_s_acc-m-18_1465989474797

354CB64200000578-3642635-image-m-51_1465987148515

354CB77300000578-3642635-image-a-12_1465989322973

SHARE