Plokkfiskur með speltrúgbrauði

Þegar ég var barn vissi ég fátt betra en að fá góðan plokkfisk og í raun hefur það ekkert elst af mér. Ég er mjög rög við að kaupa tilbúinn plokkfisk og kýs að gera hann sjálf heima frá grunni. Það er líka ótrúlega fljótlegt og kósý. Rjúkandi heitt speltrúgbrauðið gerir þetta svo að fullkominni máltíð.

 

Plokkfiskur

600 – 700 gr ýsa eða þorskur

600 gr. íslenskar kartöflur, soðnar

1 venjulegur laukur

350 ml fjörmjólk

50 gr. ósaltað smjör

3 msk spelt/hveiti

Salt og pipar eftir smekk

Gráðaostur

 

Aðferð

1. Saxið laukinn smátt og svitið hann í smjörinu á heitri pönnu

2. Hitið mjólkina upp að suðumarki í potti

3. Stráið speltinu/hveitinu yfir laukinn á pönnunni og hrærið vel – látið malla í 1-2 mín.

4. Hellið mjólkinni hægt og rólega í nokkrum skömmtum út á laukinn og hrærið vel – leyfið sósunni svo að þykkna

5. Skerið fiskinn í litla bita og steikið létt á pönnu – þar til hann hættir að vera glær (líka tilvalið að nota afgangs fisk)

6. Setjið fiskinn út í sósuna og hrærið vel svo hann losni vel í sundur

7. Salta og pipra

8. Flysjið kartöflurnar og skerið í litla bita – hellið svo út á pönnuna og blandið vel saman

9. Smyrjið eldfast mót með smá olíu og hellið plokkaranum í

10. Stráið gráðaosti yfir og bakið í 8-12 mín við 180°C

 

Speltrúgbrauð

Uppskrift lítillega breytt – upphafleg uppskrift er frá heimasíðunni www.lifreant.is

2 ½ dl fínt spelt

2 dl rúgmjöl

1 msk vínsteinslyftiduft

½ tsk salt

6 fínt saxaðar döðlur

1 dl AB mjólk

1 1/3 dl volgt vatn

 

Aðferð

1. Steinhreinsa döðlurnar og saxa smátt

2. Blanda öllu hráefninu saman og hræra vel

3. Smyrja lítið brauðform með olíu og strá rúgmjöli yfir (svo brauðið festist síður)

4. Þjappa deiginu vel í formið og baka við 180°C í 25-35 mín.

5. Gott að vefja brauðið í rakt viskastykki og bera fram

 

 

SHARE