Rihanna grætur á tónleikum í Dublin

Rihanna er á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir. Hún var að koma fram í Dublin þegar þetta atvik átti sér stað. Hún var að flytja lag sitt sem hún söng með Eminem, Love the Way You Lie og fór að tárast í byrjun lagsins og átti erfitt með að syngja lagið til enda.

Ekki er vitað hver ástæðan fyrir tárunum var en þetta gefur okkur nýja sýn á þessa 27 ára gömlu söngkonu. Hún er vanalega svo mikill nagli en er greinilega með sína mjúku hlið eins og við hin.

Sjá einnig: Rihanna hjálpar aðdáanda sínum út úr skápnum

https://www.youtube.com/watch?v=Fxs0KbyVr1g&ps=docs

SHARE