Saltkjöt og baunir – Sprengidagur nálgast! – Uppskrift

Á heimasíðu Kjarnafæðis er að finna uppskrift af Sprengidagsmáltíðinni klassísku, Saltkjöti og baunum.

Saltkjöt og baunir eru ómissandi á sprengidaginn en þessi ljúffengi og næringarríki réttur er auðvitað góður allt árið. Það er austfirskur siður að hafa túkall (soðhringi) með á sprengidaginn og mælum við eindregið með því. Soðhringirnir eru sérlega matarmiklir og góð uppfylling fyrir þá sem vilja ekki borða of mikið af kjöti í einni máltíð.
Uppskriftinni má svo auðveldlega breyta að þörf, ss. bæta beikoni, krydd eða fleiri grænmetistegundum út í, td. seljurót, steinseljurót eða blómkáli.

2,5 l Vatn
1 kg Saltkjöt
300 g Gular hálfbaunir
1 stk Laukur, sneiddur
3-4 stk Gulrætur, sneiddar
1-2 stk Gulrófur, í bitum
4 stk Kartöflur
6 stk Túkall

Túkall (soðhringir)

200 g Rúgmjöl
50 g Heilhveiti
2 dl Sjóðandi vatn
Gott er að byrja á soðhringjunum. Sjóðandi vatni er helt yfir rúgmjölið og hrærið saman. Heilhveiti er bætt smám saman við og hnoðað þykkt en meðfærilegt deig.

Skiptið deiginu og mótið sex kúlur. Fletjið þær út og gerið gat í miðjuna (á að líta út eins og kleinuhringur).

Gott er að láta soðhringina þorna svolítið áður en þeir fara í súpuna.

Látið gulu baunirnar, saltkjötið og laukinn í vatnið og látið suðuna koma upp. Fleytið ofan af. Setjið soðhringina út í, einn í einu og passið að suðan komi upp á milli. (Sumir hafa þann sið að sjóða bara 1-2 bita af saltkjötinu með baununum og afganginn í sér potti til að halda saltmagninu niðri, en það er smekksatriði).

Látið malla í 30-40 mín. Bætið þá út í rótargrænmetinu og látið malla í aðrar 30-40 mín. Smakkið til.

Ef súpan ætlar að verða of þykk, bætið þá út í vatni en ef hún er of þunn, látið þá súpuna sjóða án loks síðustu mínúturnar.

Soðhringirnir eru yfirleitt bornir fram á sér disk og smjör haft með þeim.

Verði ykkur að góðu!

 

SHARE