Siðblinda er ólæknandi – Kannast þú við þessi einkenni?

Ég hef orðið vör við allskonar klikkaða hluti síðustu misseri, bæði í kringum mig og svo í þjóðfélaginu öllu. Ég rakst síðan á þessa heimildarmynd eitt kvöldið. Myndin fjallar um siðblindu.

Þessi lýsing er á siðblindu á Wikipedia og segir frá því í stuttu máli hvað siðblinda er:

 

Siðblinda (e. psychopathy) er alvarleg persónuleikaröskun sem einkennist af skorti á samúð og samlíðan, grunnu tilfinningalífi, sjálfhverfu og blekkingum. Siðblindir einstaklingar (stundum nefndir síkkópatar) eru gjarnan lygasjúkir, þá skortir samvisku og leiðast gjarnan út í glæpi, jafnt ofbeldisglæpi sem svokallaða hvítflibbaglæpi. Siðblinda er ólæknandi. Þeir eru kaldlyndir og sýnt hefur verið fram á tengsl á milli siðblindu og ofbeldis. Til að mynda eru 20% fanga siðblindir einstaklingar.

Rót siðblindu er er umdeild en stundum talin liggja hjá foreldrum og eiga rætur í uppeldi og mótun siðgæðisvitundar og sjálfsvitundar. Einstaklingur sem verður fyrir ströngum og ósveigjanlegum kröfum þroskar ekki eigin samvisku. Eins nær einstaklingur ekki þroska þar sem veikar fyrirmyndir eru til staðar sem gefa ekki nægilega leiðsögn. Útkoman verður sjálfmiðaður og tillitslaus einstaklingur, sem í flestum tilfelum fellur fyrir þrenns konar hvötum. Þessar hvatir eru kynlífpeningar og völd.

 

Þessi heimildarmynd fjallar um siðblindu og er alveg einstaklega áhugverð:

https://www.klippa.tv/watch/RJdVk7zNpjiEgbc

SHARE