Snapchat er breytt: Kynnir Broskalla til sögunnar

Nú er komnir broskallar í stað Bestu Vina á Snapchat. Einhverjir hafa þegar sótt uppfærsluna og eru að vonum undrandi, þar sem ólíkir broskallar eru komnir við hlið þeirra sem þú snappar mest við. Uppfærslunni er ætlað að breyta Bestu Vina stillingunni, sem gerði öðrum kleift að skoða bestu vinina þína með því einu að skoða Snapchat prófílinn þinn.

Sjá einnig: Tinder keyrir tryllingslega skemmtilegar nýjungar í gegn

Sá valmöguleiki var tekinn út í janúar á þessu ári og heimurinn fór á annan endann (allir alvöru Snapchat notendur urðu brjálaðir) en skiljanlega vildu sem flestir sjá hverja allir hinir spjölluðu mest við gegnum smáforritið.  Nýja uppfærslan er bara sýnileg notandanum sjálfum og geta aðrir notendur ekki séð stillingarnar, en mismunandi broskallar merkja mismunandi gerð vináttu á Snapchat – en hér fer stuttleg útskýring á því hvað hver broskall merkir:

1. Gullhjartað

The Yellow Heart

Voða krúttlegt og merkir að þú og viðkomandi persóna eru bæði bestu vinir hvers annars á Snapchat. Ótrúlega krúttlegt, ef ég hef ekki þegar undirstrikað það … sætt og krúttlegt og vinalegt.

2. Grimmi kallinn

The Gritting Teeth Emoji

Ok. Þessi kall er pínu ergilegur. Hann merkir að þú og viðkomandi eigið bæði sama besta vininn. Eins og það sé ekki nóg, þá segir Snapchat engum frá því HVAÐA sameiginlegi vinur er BESTI vinur ykkar beggja. Pirrandi?

3. Broskallinn

The Smiling Emoji

Jú jú. Þú ert á besta vinalistanum. En þú ert samt ekki besti vinurinn. Ekki vinur númer eitt. En samt á besta vinalistanum. Meiri pirringur – Snapchat neitar að segja þér HVER besti vinurinn er.

4. Gaurinn með sólgleraugun

The Sunglasses Emoji

Þessi gaur þýðir að þú deilir besta vini með einum af vinum þínum – á besta vinalistanum. Pínu flókið, en er einhvern veginn svona – annað hvort eigið þið svona marga sameiginlega vini (frábært tengslanet) eða þá að kærastinn þinn er að reyna við bestu vinkonuna … gegnum Snapchat … sem sökkar.

 

5. Glottgaurinn

The Smirk Emoji

Þessi er rosa svalur. Hann merkir að þú ert á besta vinalista viðkomandi en að viðkomandi er ekki á þínum besta vinalista. Þú veist; rosa vinsældir og allt það. Maður getur jú ekki verið besti vinur allra. Pínu egóbúst.

6. Eldgaurinn

The Fire Emoji

Það er allt í gangi þegar þessi gaur birtist. Allt bara. Snapchat logar og myndir flæða. Dögum saman hefur ruglið flætt yfir bakka sína og þið eruð í hláturskasti – sennilega talandi á tungumáli sem enginn annar skilur. Nema þið. Eldgaurinn er ætlaður fyrir sálufélaga. Svo einfalt er það.

Hér má sjá ágæta skýringarmynd sem flögrar á netinu:

how-snapchat-friend-emojis-work

SHARE