Súkkulaðimarengs með berjafrómas

Þessi æðislega kaka er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Það má nú alveg gæða sér á einni svona um helgina, í næsta saumaklúbb eða afmælisboði.

Sjá einnig: Æðisleg marengsterta með Rolo og Nóa kroppi

IMG_8083b

Súkkulaðimarengs með berjafrómas

Marengsbotn

2 eggjahvítur

120 g sykur

1/2 tsk lyftiduft

Stífþeytið eggjahvítur og bætið sykri og lyftidufti saman við. Þeytið áfram þar til marengsinn verður alveg stífur. Smyrjið smelluform og sníðið bökunarpappírsörk ofan í botn formsins. Smyrjið marengsinum jafnt ofan í smelluformið og bakið við 120° í 50 mínútur. Slökkvið þá á ofninum og látið marengsbotninn kólna inni í honum til að koma í veg fyrir sprungur.

Súkkulaðibotn

200 g suðusúkkulaði

115 g smjör

150 g sykur

1/4 tsk salt

1 1/2 tsk skyndikaffiduft

2 tsk vanilludropar

3 egg

40 g kakó

Bræðið suðusúkkulaði og smjör saman við vægan hita og hellið í hrærivélarskál. Blandið saman við súkkulaðiblönduna sykri, salti, skyndikaffidufti og vanilludropum. Bætið einu eggi í einu við deigið og hrærið þar til það verður silkimjúkt. Sigtið kakóduft út í deigið og hrærið áfram þar til kakóið hefur blandast saman við. Sníðið bökunarpappírsörk í botninn á smelluformi og smyrjið formið. Hellið deiginu í smelluformið og bakið við 190° í 20-25 mínútur.

Kælið kökubotninn í forminu í um 5 mínútur, leysið hann úr og látið kólna alveg.

Berjafrómas

1 pakki jarðarberja Jello

50 ml sjóðandi heitt vatn

400 g frosin hindber

2-3 msk sykur

3 matarlímsblöð

600 ml þeyttur rjómi

Leysið upp jarðarberja Jello í heitu vatni og kælið þar til það verður rétt volgt. Afþíðið 200 g af frosnum hindberjum og sjóðið saman við sykur í um 4 mínútur. Sigtið hindberjapúrruna þannig að fræin skiljist frá. Leggið matarlímsblöð í bleyti í köldu vatni þar til þau mýkjast og kreistið af þeim vatnið. Hrærið blöðunum síðan saman við heita hindberjapúrruna og kælið hana að stofuhita.

Hrærið jarðarberja Jello og hindberjapúrru varlega saman við þeyttan rjóma. Blandið að lokum 200 g af frosnum hindberjum saman við berjafrómasinn og kælið í 20-30 mínútur.

Setjið súkkulaðibotn á fallegan kökudisk og smyrjið berjafrómas jafnt yfir botninn. Leggið marengsbotn yfir tertuna og kælið á meðan fílakaramellubráðin er útbúin.

Fílakaramellubráð

20 fílakaramellur

20 ml rjómi

Bræðið fílakaramellur saman við rjóma og kælið við stofuhita.

Hellið að lokum fílakaramellubráð fallega yfir marengsbotninn og berið tertuna fram.

SHARE