Súpa með sætum kartöflum og eplum, góð fyrir krakkana – Uppskrift

Þessi súpa er fín fyrir krakkana því hún er mild og svolítíð sæt. Hún fer einkar vel í maga og er stútfull af C vítamínum. Það er ekkert glútein í súpunni og ekki heldur mjólk. Hún hentar því vel þeim sem hafa glútein- og/eða mjólkuróþol.

Það best er að nota matvinnsluvél, blandara eða töfrasprota til að mauka súpuna.

3 blaðlaukar, sneiddir í mjóar sneiðar
1 msk kókosolía
1 stór gulrót, afhýdd og sneidd í þunnar sneiðar
600 g sætar kartöflur, afhýddar og saxaðar gróft
2 græn epli, afhýdd og söxuð gróft.
1,2 lítrar af vatni
2 gerlausir grænmetisteningar
Smá klípa múskat (enska: nutmeg)
225 ml eplasafi
225 ml kókosmjólk
Smá klípa salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Svartur pipar eftir smek

Aðferð

Sneiðið blaðlaukinn í mjóar sneiðar.
Afhýðið sætu kartöflurnar, eplin og gulrótina. Sneiðið gulrótina þunnt en saxið sætu kartöflurnar gróft. Kjarnhreinsið eplin og saxið gróft.
Hitið kókosolíuna í stórum potti.
Setjið blaðlaukinn í pottinn og mýkið í 6-8 mínútur. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
Bætið gulrótunum, sætu kartöflunum, eplunum og vatninu út í ásamt grænmetisteningunum.
Kryddið með salti, pipar og múskati.
Látið suðuna koma upp, minnkið svo hitann og látið malla í um 20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
Kælið súpuna aðeins og hellið svo í smá skömmtum í blandara eða matvinnsluvél og maukið eftir smekk. Mér finnst gott að mauka svona súpur svolítið mikið.
Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið eplasafanum og kókosmjólkinni saman við.
Hitið að suðu en látið ekki bullsjóða.
Berið fram með snittubrauð.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here