Tennisolnbogi

Upptök vöðvanna sem hreyfa fingurna og úlnliðinn eru í lítilli vöðvafestu á utanverðum olnboganum. Vegna of mikillar áreynslu á vöðvafestuna koma litlar rifur í vefinn sem leiða til ertingar á svæðinu og bólgu. Af þessu stafar verkur sem getur leitt upp í upphandlegg og eins niður með utanverðum framhandlegg. Þetta er kallað tennisolnbogi og kemur oftast vegna langvarandi álags. Kvillinn er algengastur hjá einstaklingum 40 ára og eldri og eru konur í meirihluta sjúklinga. Kvillinn hverfur oftast af sjálfsdáðum en sumir hafa óþægindi af þessu árum saman.

Hver er orsök sjúkdómsins?

Tennisolnbogi er ekki einungis sjúkdómur hjá tennisiðkendum. Allir íþróttamenn geta fengið kvillann sem og fólk sem sökum atvinnu sinnar notar mikið sömu hreyfingarnar. Tennisolnbogi verður einkum til þegar álag kemur á olnbogann þegar hann er boginn og samtímis er gripið (þéttings-) fast, t.d. utan um tennisspaða eða verkfæri.

Hver eru einkennin?

Óþægindin byrja yfirleitt sem verkjaástand kringum vöðvafestingarnar á utanverðum olnboganum og aukast jafnt og þétt. Sömuleiðis verður svæðið mjög aumt viðkomu. Ef úlnliðurinn er beygður upp á við gegn mótstöðu koma verkir frá vöðvafestingunum. Með tímanum getur verkurinn leitt upp í upphandlegg og niður með utanverðum framhandlegg. Máttleysistilfinning getur komið í úlnliðinn þannig að erfitt er að gera hluti sem reyna á krafta handarinnar.

Hvað er til ráða?

  • Þegar kvillin er á byrjunarstigi er hægt að minnka verkinn með því að kæla svæðið. Ekki setja klakapokann beint á húðina, setjið klút á milli húðarinnar og pokans. Kælið olnbogann í 20-30 mínútur í senn, bíðið í u.þ.b. klukkustund áður en kælingin er endurtekin.
  • Hvílið handlegginn og varist að gera hluti sem valda sársauka. Eftir nokkra daga er gott að nota hitapoka á svæðið.
  • Gerið teygjuæfingar. Beygið úlnliðinn alveg niður og haldið honum niðri með hinni hendinni.. Réttið alveg úr olnboganum og snúið framhandleggnum inn á við (þannig að fingurgómarnir vísi aðeins út á við frá líkamanum). Haldið teygjunni í u.þ.b. 15 sekúndur, bíðið aðeins og endurtakið æfinguna. Gerið æfinguna oft og iðulega yfir daginn.
  • Einnig er hægt að vefja olnbogann. Hægt er að kaupa sérstakar spelkur í stoðtækjabúðum
  • Sérhæfðari meðferð er hægt að fá hjá lækni eða sjúkraþjálfara.

Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?

Úrskurður læknis byggist annars vegar á vitneskju um hvernig óþægindin byrjuðu og hins vegar á skoðun á handleggnum. Ekki er hægt að sjá tennisolnboga á venjulegum röntgenmyndum. Röntgenmynd getur þó verið nauðsynleg til að útiloka hugsanlegan kvilla inni í olnbogaliðnum. Læknirinn athugar hvort eymslin eru í eða við olnbogann með því að þrýsta á hann. Einnig er athugað hvort það framkallar sársauka að beygja hendina upp á við. Mikilvægt er að læknirinn geti útilokað að óþægindin stafi ekki af klemmdri taug eða hvort aðrir sjúkdómar í handleggnum valdi kvillanum.

Hver er meðferðin?

Til að byrja með er oft látið nægja að hlífa hendinni og jafnvel er notast við bólgueyðandi lyf/krem í stuttan tíma. Ef óþægindin verða meiri er stundum gripið til þess að setja olnbogann og úlnliðinn í spelku í nokkrar vikur. Hægt er að prófa deyfingarmeðerð með því að sprauta deyfingu og bólgueyðandi efni í auma blettinn við vöðvafestuna. Bylgjumeðferð er stundum reynd með misjöfnum árangri. Að lokum getur skurðaðgerð verið eina úrræðið þó það sé sjaldgæft og er þá skorið á sinina við vöðvafestuna, með það fyrir augum að létta á vefnum á svæðinu og er árangur af þessu allgóður.

Hvaða lyf eru í boði?

Ýmis bólgueyðandi lyf eru til og best er að læknirinn þinn sé með í ráðum hvaða lyf eigi að taka.

Framtíðarhorfur

Einkenni eru horfin innan árs í 90% tilvika. Oftast hverfa óþægindi án nokkurar meðferðar en geta þó komið aftur ef ekki verða breytingar á álagi.

 

Fleiri heilsutengdar greinar má finna á doktor.is logo

SHARE