Hvað gerist ef þú hættir að nota brjóstahaldara?

Okkur hefur alltaf verið sagt að sýna sóma okkar með því að ganga í brjóstahaldara. Með því að vera í brjóstahaldara lítum við oft út fyrir að vera meira aðlaðandi í fötum okkar en það gæti komið þér á óvart hvaða kosti það hefur að vera ekki í brjóstahaldara af og til eða alfarið.

Sjá einnig: Brjóstahaldari sem passar illa getur skaðað þig

Sjá einnig: Karlmenn prófa að vera í brjóstahaldara í eina viku

Bætir lögun brjósta þinna

Andstætt því sem okkur var sagt, þá kemur brjóstahaldarinn ekki í veg fyrir að brjóst þín sígi. Langtíma rannsókn hefur leitt í ljós að með því að vera alltaf í brjóstahaldara getur leitt til þess að brjóst þín sigi ennþá frekar og missi lögun sína með tímanum. Niðurstaða rannsóknarinnar gefur til kynna að með því að vera í brjóstahaldara í sífellu, veikir brjóstvöðvana og lætur þar með brjóstin síga.

Sofðu betur á nóttunni

Við vitum flestar að það er ekki gott fyrir okkur að sofa í brjóstahaldara. Stundum hefur verið sagt að það geti aukið líkurnar á því að fá brjóstakrabbamein, en það hefur aldrei verið sannað. Aftur á móti getur brjóstahaldarinn truflað svefn þinn af og til á nóttunni án þess að þú endilega vaknir við það. Fáðu góðan svefn – Brjóstahaldaralaus.

Bætir blóðflæðið

Brjóstahaldarar eru hannaðir til þess að liggja þétt upp að líkama þínum og eru jafnvel mjög þröngir um þig miðja og sitja þétt upp að öxlum þínum. Það getur orðið til þess að blóðflæðið skerðist og getur valdið æðasjúkdómum seinna um ævina og þá var push-up brjóstahaldarinn ekki þess virði eftir allt saman.

Bætir heilsu brjósta þinna

Brjóstahaldarar valda ekki krabbameini í sjálfu sér, en þeir hafa áhrif á blóðrásina og að vera í þröngum brjóstahaldara getur það leitt til þess að þú fáir útbrot, sýkingar, kemur í veg fyrir að sviti myndist á brjóstum þínum og minni líkur á því að þú fáir bólur á brjóstin.

Ef brjóstahaldarinn er of þröngur, passar illa á þig eða með spöngum sem meiða þig, ert þú að skaða sjálfa þig. Best er að vera í brjóstahaldara sem passar vel eða vera ekki í brjóstahaldara yfir höfuð.

[nextpage title=”Lestu meira”]

Sparaðu pening

Við vitum það allar að brjóstahaldarar geta kostað marga peninga. Næst þegar þú ert að hugsa með þér að fá þér dýran brjóstahaldara, skaltu hugsa þig tvisvar um og hugsa um hvað annað mikilvægara þú getur eytt þessum peningi í.

Styrkir brjóstin

Brjóstahaldarinn kemur í veg fyrir að þú berjist við þyngdarlögmálið á náttúrulegan máta. Þú heldur kannski að ef þú hættir að nota brjóstahaldara að brjóstin þín munu síga suður á bóginn á ógnarhraða, en með því að nota hann ekki, munt þú styrkja brjóstvöðva þína.

Heilbrigðari brjóstvefir

Langtímarannsóknin leiddi í ljós að með því að vera í brjóstahaldara getur þú verið að valda því að brjóst þín geti ekki framleitt heilbrigðan brjóstvef. Með því að stuðla að heilbrigðum brjóstum, getur þú verið að koma í veg fyrir alls kyns sjúkdóma, þar á meðal krabbamein.

Heilbrigður brjóstvefur mun hjálpa brjóstvöðvunum að styrkjast og getur leitt til þess að þú fáir stærri, sterkari og þéttri brjóst.

Sjá einnig: Þær slepptu brjóstahaldaranum í heila viku

Þægindi

Fyrir margar konur gæti þetta einmitt verið stærsta ástæðan til þess að hætta að nota brjóstahaldara. Mörgum finnst fátt betra en að koma heima og tæta sig úr brjóstahaldaranum eftir að hafa veirð í honum allan daginn.

Öndun þín mun bætast

Þegar þú ert í einhverju þröngu utan um þig allan daginn, alla daga ársins, í mörg ár, eins og brjóstahaldara, mun öndun þín hægt og bítandi verða heft. Þrátt fyrir að brjóstahaldari er ekki lífshættulegur, munt þú örugglega anda betur ef þú heftir ekki súrefnisflæði.

 

 

Heimildir: Tip Hero

SHARE