Þú mátt ekki skamma mig! – Samband stjúpmæðra og dætra

Í nýlegri BA rannsókn í félagsráðgjöf komu fram vísbendingar um að neikvætt samband stjúpdætra og stjúpmæðra geti haft neikvæð áhrif á samband dætra við feður sína.Rannsóknina gerðu þær Jónína Rut Matthíasdóttir og Valgerður Rún Haraldsdóttir vorið 2015. Leiðbeinandi þeirra var Valgerður Halldórsdóttir aðjúnkt.

Sjá einnig: Börn í stjúpfjölskyldum þurfa samveru við foreldra

Ritgerðin ber heitið  „Þú mátt ekki skamma mig” í félagsráðgjöf fjallar um upplifun stjúpdætra af sambandi sínu við stjúpmæður sínar. Hún er byggð á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar þar sem viðtöl voru tekin við sex ungar konur í Háskóla Íslands sem allar eiga það sameiginlegt að hafa verið stjúpdætur. Aðstæður kvennanna voru að mörgu leyti frábrugðnar og kom því rannsakendum á óvart í hversu miklum mæli þær höfðu svipaða reynslu og sögu að segja.

Rannsóknin gefur vísbendingu um að neikvætt samband stjúpdætra og stjúpmæðra geti haft neikvæð áhrif á samband dætra við feður sína, og væri því áhugavert að skoða það nánar. Samband stjúpmæðra og stjúpdætra er flóknasta samband innan stjúpfjölskyldunnar og niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að stjúpdætur á unglingsaldri eiga erfiðara með að mynda góð tengsl við stjúpmæður sínar heldur en þær sem yngri eru. Áhrif stjúp- og hálfsystkina spila einnig stóran þátt í upplifun stjúpdætra á að finnast þær tilheyra fjölskyldunni og sambandi þeirra við feður sína.

Sjá einnig: Gengur með barn stjúpdóttur sinnar

Þátttakendurnir voru allir sammála um að helsta orsök þess að sambandið þróaðist á neikvæðan hátt mætti rekja til þess að stjúpmæðurnar reyndu of fljótt að gegna foreldrahlutverki í þeirra lífi og nálguðust þær ekki á þann hátt að mynda vinatengsl og traust í byrjun. Þær gagnrýndu það harðlega þegar stjúpmæður þeirra reyndu að fara inn á yfirráðasvæði mæðra þeirra.

Hér má lesa ritgerðina í heild sinni

Fleiri frábærar greinar um stjúptengsl má finna á  stjuptengsl

 

SHARE