Þú veist að þú ert orðin/n gömul/gamall þegar..

Það er ýmislegt sem getur bent þér á að þú sért ef til vill orðin gömul/gamall. Hér eru nokkur dæmi, þú ert orðin gömul þegar..

– Þú mannst eftir því þegar það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum

– Þú geymir meiri mat en bjór í ísskápnum

– Vinir þínir gifta sig og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta saman

– Það ert þú sem hringir í lögregluna og kvartar yfir krökkunum sem halda partý á efri hæðinni en ekki öfugt.

– Þú mannst eftir “Það er daloon dagur í dag” vorrúllu auglýsingunum

– Þegar “date night” felst í því að borða góðan mat og horfa á mynd.. ekkert annað.

– Þegar þú segir “Ég get bara ekki lengur drukkið jafn mikið og ég gerði” í staðinn fyrir  “ég ætla aldrei að drekka svona mikið aftur!”

– maður sefur ekki lengur hjá tönnunum sínum-

– maður er að reyna að slétta úr sokkunum og fattar að maður er ekki í sokkum-

– maður er að borða morgunmat og heyrir brak og bresti og er ekki að borða morgunkorn-

– maður ætlar út en er bara kyrr heima-

– maður lítur út á morgnana eins og gamla myndin í ökuskírteininu-

– maður þarf að gera tvær tilraunir til að ná sér upp úr sófanum-

– maður fer út á pallinn heima til að skemmta sér-

–  maður fær sér blund frekar en að kíkja í glas með vinum-

– maður er á ferðalagi og er búinn með ORKUNA áður er  peningarnir klárast

– maður er farinn að segja eitthvað við krakkana sína sem mamma var vön að segja og maður þoldi aldrei-

–  maður óskar sér þess bara í afmælisgjöf að vera ekki minntur á hvað maður er orðinn gamall-

– maður steig fram af kantinum og þarf að gá hvort gatan er þarna ennþá-

– maður stendur á fætur og finnst maður hafi verið að lyfta lóðum-

– maður þarf lengri tíma til að hvíla sig en til að þreytast-

– maður man ekkert stundinni lengur en notar ómældan tíma í að kvarta-

– maður skrifar aðallega hjá sér símanúmer lækna, heilsugæslu og félagsþjónustunnar-

–  maður situr í ruggustólnum og hann hreyfist ekki-

– lyfsalinn er orðinn besti vinur þinn-

–  maður finnur bílinn sinn á bílastæðinu og hefur þá dottið í lukkupottinn-

– glampinn í augum manns er bara endurskin frá tvískiptu gleraugunum-

– maður þarf tvisvar sinnum lengri tíma til að ná upp í helming af fyrra útliti-

– maður finnur til undan öllu og ef það meiðir mann ekki – er það í ólagi-

– maður leitar og leitar að gleraugunum og þau sátu allan tímann á höfðinu-

– maður bítur í kjötsneiðin og tennurnar sitja fastar-

– maður hættir öllum ósiðum og líður samt ekki vel-

– maður er orðinn þolinmóðari en sannlekurinn er sá að manni stendur orðið á sama-

– maður er loksins farinn að sjá hlutina í heild en þá fer líkaminn að hrynja

– maður fer að velta fyrir sér hvernig maður komst yfir hæðina þegar maður man ekki eftir að hafa komist á toppinn-

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here