Trylltar ostabrauðstangir með piparostasósu

Hérna höfum við enn eina snilldina frá henni Tinnu Björgu. Það eru ekki mörg orð sem þarf að hafa yfir þetta gúmmelaði. Ég gæti vel hugsað mér að baða mig í sósunni. Nammi namm!

Endilega fylgstu með Tinnu á Facebook – þú verður ekki svikin af því!

10347474_10152490613262453_6874169719736412056_n

Ostabrauðstangir

120 ml volgt vatn

1 og 1/2 tsk þurrger

1/2 msk sykur

1 tsk salt

1 msk olía

240 gr hveiti

1 og 1/2 hvítlauksrif

30 gr brætt smjör

30 gr fínt rifinn parmesan-ostur

200 gr rifinn ostur

pizzakrydd

sjávarsalt

svartur pipar

  • Leysið upp ger og sykur í volgu vatni og blandið salti og olíu saman við. Hrærið hveiti smátt og smátt út í deigið og hnoðið þar til það kemur saman í kúlu sem festist við hnoðarann á hrærivélinni. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið hefast í um 1 klst. Gott er að smyrja botn og hliðar á glerskál með smá smjöri og færa deigið yfir í hana þannig að auðveldara sé að losa það úr að hefun lokinni. Ég legg deigskálina oftast á heitan stofuofn til að flýta fyrir hefuninni.
  • Sáldrið smá hveiti á borðflötinn og fletjið deigið út þannig að það verði ferhyrnt og hæfilega þykkt. Ég flatti það út þannig að deigið passaði í ferhyrnt kökuform. Ég smurði formið með ágætis dassi af olíu og lagði deigið svo ofan í og teygði það út í öll horn. Ef þið eigið ekki ferhyrnt kökuform er alveg eins gott að setja deigið á bökunarpappírsörk sem smurð hefur verið með olíu.
  • Pressið hvítlauksrif og blandið saman við brætt smjör. Penslið hvítlaukssmjöri á deigið og sáldrið parmesanosti og osti yfir. Kryddið með pizzakryddi, sjávarsalti og svörtum pipar. Ég notaði Heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum.
  • Bakið við 260° í 8-10 mínútur eða þar til deigið hefur dökknað og osturinn verður stökkur. Skerið brauðið í stangir og berið fram með heitri piparostasósu.

Piparostasósa

1 piparostur

1 1/2 – 2 dl mjólk

  • Rífið piparost þannig að hann bráðni fyrr og bræðið hann saman við mjólk. Það getur tekið svolítið langan tíma fyrir ostinn að bráðna og því þarf að passa að hafa ekki of lágan hita á hellunni. Athugið þó að sósan brennur auðveldlega við.

10347792_10152490611002453_1283466370911901865_n

Þetta er gotterí sem bráðnauðsynlegt er að prófa!

Tengdar greinar:

Mozzarellafylltar brauðbollur með hvítlauks- og steinseljusmjöri

Rúllutertubrauð með pestó og mozzarella

Mexíkóskur brauðréttur – Uppskrift

SHARE