Viltu sjá Ásgeir Trausta á Esjunni?

Ásgeir Trausti spilar á Esjunni ásamt hljómsveit sinni föstudaginn 29. maí. Tónleikarnir verða haldnir hjá Steini, frítt er inn og allir velkomnir.

Herlegheitin byrja undir berum himni kl.18, en þá þeytir Dj Yamaho skífum. Að því loknu, eða kl. 20, stígur Ásgeir á svið og gefur forsmekk af tónleikum sínum sem verða í Hörpu þann 16. júní.

Sjá einnig: Ásgeir Trausti tekur Wrecking Ball – Myndband

Þyrluþjónustan Helo verður með þyrlur á staðnum og geta tónleikagestir flogið upp að tónleikasvæðinu frá Esjurótum, gegn gjaldi.

Ásgeir Trausti og hljómsveit hafa undanfarin rúm tvö ár verið á flakki um heiminn til að fylgja eftir útgáfu plötunnar Dýrð í dauðaþögn. Þeir eru nýkomnir heim af  tónleikaferðalagi um Ástralíu með bresku hljómsveitinni Alt-J, en þar spiluðu þeir í fimm borgum fyrir um 40.000 manns. Ásgeir hefur tilkynnt það að tónleikar hans í Hörpu verði þeir allra síðustu í bili eða þangað til næsta plata kemur út svo nú fer hver að verða síðastur að skella sér á tónleika með tónlistarmanninum unga.

Þetta er í annað skipti sem Nova og Helo halda tónleika á toppi Esjunnar. Í fyrra voru það plötusnúðurinn Margeir og söngkonan Ásdís María sem skemmtu þeim fjölmörgu gestum sem gerðu sér ferð á Esjuna til að dilla sér.

Startaðu sumrinu með stæl, reimaðu á þig gönguskóna og dansaðu á Esjunni með Nova og öllum hinum. Mundu bara að klæða þig vel til að njóta kvöldsins sem best. Það kostar ekkert inn á tónleikana og geta ungir sem aldnir skemmt sér saman, því það er jú ekkert aldurstakmark.

Nánari upplýsingar má finna á Nova.is

SHARE