Eftir að Urban Outfitters hannaði bol sem á stendur „Eat Less“ eða „Borðaðu minna“ ákvað Sophia Bush að sniðganga þessa tískurisa algjörlega.
Sophia Bush, sem margir muna eftir úr One Tree Hill hefur alltaf barist fyrir því að framleiðendur tískufatnaðar séu með fyrirsætur sem eru með heilbrigt útlit. Hún skrifaði því opið bréf til Urban Outfitters sem hún birti á bloggi sínu:
„Þið ættuð að gefa út opinbera afsökunarbeiðni og gefa ríkulegt framlag til þeirra félaga sem hjálpa konum að berjast við átraskanir. Mér verður illt, við tilhugsunina um að einhver, í einhverri nefnd hjá ykkur hafi kosið „já“ við svona og það sem meira er, að þið skulið hafa framleitt bol með svona særandi skilaboðum. Þetta er eins og að rétta manneskju með sjálfsvígshugsanir hlaðna byssu. Þið eigið að vita betur.“
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.