Mjög margar konur þekkja það að fá túrverki, misslæma. Sumar finna bara ekkert fyrir þessu blæðingatímabili á meðan aðrar engjast um af verkjum á meðan á blæðingum stendur.
Hér á eftir koma 10 leiðir til að draga úr túrverkjum.
- Borðaðu meira grænmeti og ávexti, dragðu úr fituríkum mat taktu út alla óholla fitu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að með þessu má lina túrverki. Auk þess sem gott matarræði hefur almennt góð áhrif á heilsuna.
- Nýttu þér örugg verkjalyf, það vilja ekki allir nota verkjalyf en í sumum tilfellum er gott að skella í sig verkjalyfjum.
- Drekktu góð te, sérstaklega blöndur með túrmeriki og piparmyntu.
- Taktu inn góðar fiskiolíur og Omega, sýnt hefur verið framm á gagnsemi góðra olía.
- Prófaðu nálastungur, rannsóknir hafa sýnt að nálastungur gefa góðan árangur við að draga úr túrvekjum.
- Notaðu hreinar kjarnaolíur, Lavender, Clare sage og Majoran hafa reynst vel til að lina túrverki. Vandaðu valið og forðastu kjarnaolíur með viðbættum eiturefnum.
- Kúrðu upp í sófa með hitapoka yfir verkjasvæðinu, hitin dregur úr verkjum.
- Farðu á æfingu, með því að fara í ræktina og taka á því eykur þú seratónín framleiðslunni og það svínvirkar á túrverki.
- Taktu inn auka magnesíum. Magnesíum dregur úr krömpum og hver einasta fruma líkamans þarf á því að halda.
- Í verstu tilfellum farðu til kvennsjúkdómalæknis og athugaðu með pilluna eða einhvað hormónatengt til að hjálpa þér
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera kona en hey það er hrikalega skemmtilegt á köflum og svona ráð auðvelda okkur að takast á við það sem okkur fylgir.
Upplýsingar fengnar af vef: Everydayhealth.com
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!