Hinn 11 ára gamli listamaður, Dušan Krtolica frá Serbíu er algjör snillingur. Hann teiknar alveg einstaklega vel, mun betur en jafnaldrar sínir og meira að segja fullorðnir líka.
Dušan hefur verið að teikna síðan hann var tveggja ára og hefur greinilega aldrei hætt að æfa sig. Við 8 ára aldurinn hafði hann haldið tvær sýningar á listaverkum sínum svo það er öruggt að hann á framtíðina fyrir sér.