Við höfum sjálfsagt öll/allar geymt eitthvað af þessum tegundum í ísskápnum, Ég sjálf hef nú sett flest af þessu beint í ísskápinn sjálf!
Sósur í flöskum
Við erum að tala um Soya sósu, Tabasco og Worchestershire svo einhverjar séu nefndar. En þessar sósur getur þú geymt í einhver ár í skápnum hjá þér.
Kartöflur
Ísskápurinn skemmir bragðið af þeim með geymslu í ísskáp hvort sem þær eru bökunar, venjulegar, rauðar eða sætar kartöflur. Best er að geyma þær á þurrum stað og það í pappírspoka. Lokaður plastpoki geri þær mjúkar og flýtir fyrir myglu.
Brauð
Brauð þornar fljótt í ísskáp. Taktu fram það sem þú notar næstu 4 dagana og geymdu í boxi. Gott er að frysta restina og tekur fram þegar þig vantar. Alltaf gott að spara.
Laukur
Gott er að geyma lauk í netapoka sem hleypur vel í gegnum sig. Alls ekki geyma lauk við hliðina á kartöflum því það orsakar rotnun á lauknum.
Tómatar
Ísskápur „drepur“ bragðið á tómötum ef þeir eru geymdir í ísskáp og þeir verða fyrr mjúkir þar. Til að halda þeim ferskum er best að geyma þá í pappírspoka.
Avokadó
Það borgar sig ekki að setja Avokadó inn í ísskáp fyrr en það er full þroskað, þá geymast þau þar í eina viku. Best að er geyma það óskorið annars dökknar það þegar súrefni kemst kjötið.
Kaffi
Þetta fannst mér einkennilegt að það væri bannað að geyma kaffi í ísskáp, enda hef gert það í gegnum árin. En það breytir bragðinu á því. Best að er geyma í lofttæmdu góðu boxi.
Hvítlaukur
Best er að geyma hvítlauk inn í skáp en ekki ísskáp. Ef þú stingur honum inn í kælir þá dregur það úr bragðinu og hann myglar þar. Þegar þú hefur tekið hvítlauk í sundur er best að nota restina innan 10 daga. Maukaður hvítlaukur er best geymdur í ísskáp eins lengi og þú vilt.
Hunang
Að setja hunang í ísskáp orsakar að það þykknar og kristallast þar. Hunang er náttúrlegt og geymist best inn í skáp.
Melónur
Hafið þær upp á borði til að draga fram sem besta bragðið af þeim. Við geymslu á þeim við stofuhita hjálpar til að halda andoxunar efnum betur saman í þeim. Eftir að það er búið að skera þær niður geymast þær í ísskáp í 3-4 daga.
Olíur
Olíur þykkna og verða skýjaðar í ísskáp. Eina olían sem má geymast þar er hnetuolía. Annars að geyma þær allar inn í skáp.
Ávextir
Epli, ber, ferskjur, apríkósur og nektarínur eiga að geymast í skál upp á borði þar til að ávöxturinn er full þroskaður. Það dregur úr bragðinu að geyma þessa ávexti í ísskáp.
Rafhlöður
Það er einhver mýta að það megi geyma batterí í ísskáp. En bæði mikill hiti og eins mikill kuldi getur skemmt batterí.
Naglalakk
Eina sem ísskápurinn þinn gerir fyrir naglalakkið er að það verður þykkt og skemmir efnin sem eru í þeim. Best að geyma þau við stofuhita og fjarri sólarljósi.
cafemom.com
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.