9 dagar til jóla og spennan magnast enn meira. Vonandi eru sem allra flestir komnir í jólaskap, búnir að fá jólasmákökur, jólaöl og pakka inn einhverjum gjöfum. Þessi tími á að vera ljúfur og góður.
- 32 mismunandi augnskuggar.
- 4 stk. naglalökk (bleikt, rosé, grátt, dökk rautt).
- 3 stk. augnblýantar (Brúnn, svartur, grár).
- 2 stk. kinnalitir.
- 2 stk. varalitir.
- 2 stk. varagloss í túpu.
- 1 stk. varablýantur.
- 6 stk. förðunarburstar.
Ef þig langar til að fá vinning dagsins, þá er það eina sem þú þarft að gera er að skrifa hér fyrir neðan „já takk“ og þú gætir dottið í lukkupottinn. Við drögum út í fyrramálið.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.