Ég er alltaf til í að henda í frystinn frekar en að henda í ruslið. Ég, sem var alin upp á hjara veraldar, á heimili sem voru nokkrar frystikistur og skápar og eini ferðamátinn á veturnar var bátur og snjósleði, veit að það er hægt að frysta mat og hann skemmist ekki á meðan. Ég get tekið út lasagnað sem ég hafði í matinn í fyrra og borðað það með bestu lyst. Svoleiðis er það bara! Ég veit þetta hljómar ekki sem álitlegur kostur þegar þú veltir fyrir þér hvað þú ætlir að borða í kvöld, en þegar letin er við völd og þú nennir ekki út í búð, er mjög gott að geta tekið bara eitthvað úr frystinum.
Klakapokar eru eitt af því sem ég nota gjarnan. Ég bý til engiferskot og frysti nokkurra mánaða byrgðir í klakapokum. ALGJÖR SNILLD!
Klakabox eru líka eitthvað sem ég held upp á, það er ekki alveg hægt að troða þeim jafn vel og pokunum en það er líka sumt sem fer í boxin sem þú kæmir ekki í pokana.
Hér eru nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem ég gróf upp á veraldarvefnum:
1. Þú getur fryst afganginn af kaffinu þínu og fengið þér ískaffi….. kannski bara næsta sumar?
2. Afgangur af rauðvíni. Er ekki einhverntímann tilefni til að nota þessa mola í sangríu? Ég held það nú!
3. Ef jógúrtið er að renna út og enginn á leiðinni að borða það. Skelltu því í klakabox og notaðu í „búst“ seinna. Þú getur líka fengið þér molana í skál eins og ís. Hrikalega gott!
4. Frystu safa með kókosmjólk. Þú þarft auðvitað að frysta kókosmjólkina fyrst og hella svo söfunum ofan á og henda aftur í frystinn.
5. Frosnir ávextir fríska upp á alla drykki.
6. Vatnsmelónukubbar!!! NAMM!
7. Hversu fallegt er þetta? Blómin eru fryst með ísmolunum og þetta lítur svo fallega út.
8. Frosin jarðarber með súkkulaði! Gæti þetta verið eitthvað girnilegra?
9. Frosnar blóðappelsínur í sódavatnið.
10. Sushi hrísgrjón með allskyns góðgæti
11. Frosnir ávextir í „bústið“
12. Frosið súkkulaði í mjólkina verður að geðbiluðu mjólkurhristing
13. Þetta er líka góður efniviður í mjólkurhristing
14. Aloe vera ísmolar ef þú brennur í sólinni ….. í útlöndum
15. Ætt glimmer er eitthvað sem er til! Ég veit ekki hvort það er til á Íslandi en það er pottþétt mega flott í drykk!
—————
Fylgstu með!
Kidda á Instagram
Hún.is á Instagram
Kidda á Snapchat: kiddasvarf
Hún.is á Snapchat: hun_snappar
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.