Ef ske kynni að þú værir á leiðinni til Feneyja, þá er Aman Canale Grande Hótelið staðurinn til að vera á þar. Feneyjar eru náttúrulega dásamlegur staður til að vera á og rómantíkin allsráðandi.
Byggingin var reist á 16. öld og er alveg einstaklega falleg og vönduð. Risa ljósakrónur eru allsstaðar, ballsalir og lúxus í hverju rými.
Þetta er alveg ofsalega flott og að sjálfsögðu kemur þá á „gondóla“ að hótelinu.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.