Tíska á að vera skemmtileg en stundum þarf maður að líta snyrtilega út. Hér eru nokkur ráð sem gætu aðstoðað!
1. Girtu skyrtuna ofan í buxurnar/pilsið
2. Slepptu gallajakkanum og víkkaðu gallaefnissjóndeildarhringinn
3. Prófaðu þig áfram en ekki sleppa alveg fram af þér beislinu. Þú kemst líklega upp með flottan samfesting en ekki gegnsæjan topp.
4. Veldu vel sniðna kjóla – A sniðið fer flestum konum.
5. Lærðu að klæðast því klassíska. T.d. vel sniðnum hvítum skyrtum.
6. Hnepptu upp í háls. Stundum þarf bara að hneppa upp í háls.
7. Lærðu á fleiri liti, heimurinn er ekki bara svartur og hvítur. Það er t.d. hægt að klæðast dökkbláu og kremuðu.
8. Paraðu fylgihlutina saman svo þeir séu í stíl.
9. Tileinkaðu þér öruggan „búning“. Eitthvað sem þér líður alltaf vel í og er klassískt.
10. Leiktu þér með hlutföllin. Stór kápa, stutt pils, síð peysa…
11. Klæddu þig eins og karlmaður.
12. Lærðu að klæðast lögum og blanda þeim skemmtilega saman.
13. Veldu fylgihlutina. Prófaðu að skipta út hálsmeni fyrir mynstraðan klút.
14. Ekki vera hrædd við flatbotna skó. Ef Olsen tvíburarnir komast upp með að ganga í flatbotna við skósíð pils, þá getur þú það líka.
15. Ef þú ert í vafa, farðu þá í svart. Kannski ögn þunglynt – en hrikalega chic!
16. Ekki ganga í magabolum.