Við hjá hun.is erum miklir aðdáendur Cosmopolitan. Við rákumst á mjög athyglisverða grein þar sem karlmenn voru fengnir til að segja frá því á Twitter hvað þeim finndist mest kynæsandi við konur. Niðurstaðan var athyglisverð:
- Símarödd kvenna, snemma á morgnana og seint á kvöldin
- Dönnuð úti á götu, villingur í rúminu
- Hún kann að labba á hælum
- Skutla með metnað
- Kona sem er 70% engill og 30% púki
- Kona sem er með gott sjálfsálit og sjálfstraust
- Borgar sjálf fyrir kvöldmatinn sinn
- Ríkar konur. Ég vil að hún geti séð fyrir mér
- Kona sem þarf ekki farða og hefur það einfalt
- Gella sem vill spila PS3 með mér
- Hún verður að lykta vel
- Hún gengur um í bolnum mínum
- Hún bítur í neðri vörina á mér þegar við erum að kyssast
- Nýkomin úr sturtu, vafin í handklæði
- Hefur gott lánstraust
- Tær, það er að segja sætar tær
- Stelpa sem er sjálfstæð og gleymir því aldrei að ég er ekki pabbi hennar
- Stúlkur sem synda
- Stelpa í hettupeysu og íþróttabuxum að slaka á
- Konur sem ganga alltaf í strákanærbuxum
- Stelpa sem spilar tölvuleiki
- Stelpa sem bítur í neðri vörina sína þegar hún horfir í augun á þér
- Kynlíf í sturtu
- Stúlka sem þekkir fortíð mína en dæmir mig útfrá því hvernig ég er í dag
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.