Svo þú heldur að klámstjörnur líti alltaf óaðfinnalega út? Gangi um með gloss á vör og þrýstin brjóst, stynji bak við hvert húshorn og iðki ónáttúrulegt kynlíf á hverjum einasta degi sem venjulegu fólki er ómögulegt að leika eftir?
Stoppum aðeins hér!
Klámstjörnur eru ekki alveg jafn ónáttúrulegar í daglegu lífi og ætla mætti. Reyndar líta allflestar klámstjörnur út eins og ósköp venjulegar konur, þegar farðinn hefur verið fjarlægður. Svo eðlilega geta klámstjörnur litið út í daglegu lífi, að þú myndir eflaust ekki gjóa augunum í átt að nokkurri þeirra.
Förðunarmeistarinn Melissa, sem gengur undir notendanafninu xmelissamakeupx á Instagram farðar gjarna frægar klámstjörnur fyrir tökur og deilir stundum FYRIR og EFTIR ljósmyndum af þeim sömu á Instagram – en þó ótrúlegt megi virðast, líta þær allar út eins og ósköp venjulegar konur þegar allur farðinn hefur verið fjarlægður og hárið tekið upp í tagl.
Í meðfylgjandi myndasafni má sjá muninn, en það var Melissa sem tók allar myndirnar:
Tengdar greinar:
Ungt fólk er háð klámi – Heimildarmynd
„Pabbi er reiður af því ég eyðilagði klám fyrir honum“ – Klámmyndastjarna talar um pabba sinn
Þá og nú: Svona var að vera Playboy Leikfélagi á árum áður
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.