Það er svo DÁSAMLEGT þegar lítil börn sem botna hvorki upp né niður í þyngdarafli, öryggisreglum eða hvað þá úr hverju heimurinn er gerður fremja hetjudáðir alveg óvart OG TOPPA allt sem á undan er gengið!
Þessi litla, hljóðláta og annars varkára þriggja ára stúlka er algjör harðjaxl (svona, já, eiginlega óvart) og sést hér reyna að átta sig á því hvernig hlaupahjól í skemmtigarði virkar og fer alla leið. ALLA. 360 gráður snýst blessað litla barnið og sleppir ekki takinu fyrr en undir lokin.
Aumingja litla stúlkan hlýtur að vera gerð úr stáli!
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”SF8_CtsjkvU”]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.