Rússnesku vinirnir og ofurhugarnir Vadim Makhorov og Vitalyi Raskalov fóru í Evrópureisu þar sem þeir heimsóttu 12 borgir. Þeir ákváðu að fara ekki þennan venjulega túristahring heldur mynda borgirnar ofan frá.
Þeir byrjuðu ferðina í Stokkhólmi í Svíþjóð en voru ekki nógu ánægðir með þá borg, þar sem að þeim fannst byggingarnar full lágar og þær sem voru spennandi voru með útsýnispöllum sem allir gátu farið á. Þannig að í þeirri borg fóru þeir frekar niður í neðarjarðarlestargögnin.
Eiffeilturninn og Notre dame í París, kirkjan La Sagrada familia í Barcelona, stjörnuúrið (postulaklukkan) í Prag og Maríukirkjan í Varsjá eru á meðal bygginga sem að þeir félagar fara í og taka mynd frá hæsta punkti. Það er ekki laust við að maður fái í magann við að horfa á sumar myndirnar.
Fleiri myndir og sögu ferðalagsins má skoða á heimasíðunni þeirra hér
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.