Nú fer að líða að jólum og þá komumst við á Hún.is í gjafagírinn. Seinustu þrjú ár höfum við verið með jóladagatal 1.- 24. desember og ætlum að halda því áfram. Í dag ætlum við að gefa einum heppnum vini okkar gjafabréf á Public House.
Public House er á Laugarvegi 24 og er kjörið að skella sér þangað inn og fá sér dýrindis máltíð eftir jólagjafakaupin.
„Allir réttir á Public House Gastropub eru smáréttir, þú parar saman matseðil með þínum réttum en við sjáum um að para bjór og aðra drykki við réttina ef þú ert í stemmingu fyrir það. Við berum síðan réttina á borð fyrir þig í þeirri röð sem þeir eru tilbúnir, við lofum samt að geyma eftirréttina alltaf þangað til síðast,“ segir Eyþór Mar Halldórsson í samtali við Veitingageirinn.is.
„Þar sem það skiptir miklu máli fyrir okkur að matargestir fari saddir út, finnst okkur rétt að benda á að við mælum með 3-5 réttum á mann fyrir fulla máltíð.
Brunch gerir góða helgi enn betri, það eina sem getur toppað góðan brunch er brunch með smá bubbly. Champagne brunch allar helgar á Public house Gastropub.“
Ef þú vilt eiga kost á því að fá gjafabréfið, þá þarftu bara að skrifa “já takk” hér fyrir neðan og þú ert komin í pottinn. Drögum út í fyrramálið.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.