Viltu láta þér líða vel …. Alltaf?
Þá skaltu segja þessar jákvæðu staðhæfingar daglega og segja þær upphátt!
Með því ertu að endurforrita þig og ferð að upplifa jákvæðar breytingar mjög fljótt.
5 jákvæðar staðhæfingar:
- Ég er mikilvægasta manneskjan í mínu lífi.
- Ég er falleg.
- Ég er þakklát.
- Ég er Farsæl.
- Ég er besta útgáfan af mér.
Sjá meira: 5 ráð til að bæta sjálfstraustið
Auðvitað getur þú gert þínar eigin setningar, eitthvað sem þú sækist eftir að vera eða öðlast. Það er ekkert grín að þetta virkar og það virkar mjög vel.
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!