Þær eru glæsilegar upp á sviðinu stúlkurnar. Victorias secret stelpurnar mega eiga það að þær ekki horaðar eins og tíðkast oft í þessum bransa, þær mega hafa línur og eiga að vera í góðu formi. Það er augljóst að þær stunda líkamsrækt og lyfta lóðum og styrkja vöðvana.
Hér eru 6 heitustu Victorias secret módelin að mínu mati, ekki eftir röð. Ert þú sammála eða ósammála? Hefðir þú kosið aðrar?
2.Alessandra Ambrósio er Brasilísk. Ambrosio byrjaði sem módel fyrir PINK línuna frá Victorias Secret. Hún hefur hlotið heimsfrægð síðustu ár.
3.Miranda May Kerr kemur frá Ástralíu. Hún byrjaði feril sinn þar en varð heimsfræg eftir að hún varð ein af Victorias Secret englunum árið 2007. Hún er fyrsti Ástralinn sem tekur þátt í Victorias Secret sýningunum. Miranda er gift leikaranum Orlando Bloom og á með honum soninn Flynn.
4.Marisa Lee Miller er Amerísk. Þekktust fyrir að koma fram í Sports Illustrated og svo að sýna undirföt fyrir Victorias Secret.
5.Rosie Huntington er breskt módel og leikkona. Hún er eldheit og líklega þekktust fyrir að sýna undirföt fyrir Victorias Secret og Burberry.
6. Adriana Lima er mitt allra uppáhalds módel. Adriana er frá Brasilíu og hefur unnið fyrir Victorias Secret síðan árið 2000. Hún auglýsti einnig Maybelline förðunarvörurnar frá árinu 2003-2009.