Jólin nálgast óðfluga og við stelpurnar á Hún.is elskum að gefa lesendum okkar gjafir. Seinustu þrjú ár höfum við verið með jóladagatal 1.- 24. desember og ætlum auðvitað að halda þeirri venju okkar. Í dag ætlum við að gefa einum heppnum vini okkar gjafabréf fyrir tvo á Bad Boys.
Skyndibitastaður Bad Boys er við Vesturlandsveg, í sama húsi og Shell. Þar eru í boði syndsamlega góðir hamborgarar, franskar, sjeik, sósur og gos.
Ef þú vilt eiga kost á því að fá gjafabréfin, þá þarftu bara að skrifa „já takk“ hér fyrir neðan og þú ert komin í pottinn. Drögum út í fyrramálið.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.