Grænt te er æði, ekki bara út af því að það er gott, heldur hefur það frábæra eiginleika.
Sjá einnig: 10 ástæður til að drekka grænt te
1. Hreinsar upp bólótta húð: Rannsóknir hafa verið gerðar í Bandaríkjunum sem hafa leitt í ljós að innihaldsefnin í grænu te hjálpa til við að eyða bólum. Prófaðu að útbúa grænt te og láta það kólna og nota það síðan sem andlitshreinsi tvisvar á dag. Þú getur líka notað tekpokann til að leggja á sýktu svæðin.
2. Læknar þvarfærasýkingar: Ef þú ert með þvagfærasýkingu, drekktu 2 til 3 bolla af grænu te til að losna við sýkinguna. Teið mun minnka bólguna í þvagblöðrunni og með því að drekka það reglulega, gætir þú komið í veg fyrir að sýkingin komi upp.
3. Minnkar ofnæmi: Þegar þú ert að fá ofnæmi, drekktu grænt te. Teið getur minkað bólgur í ennis- og kinnholum og gefið þér vissan létti.
Sjá einnig: 9 súpergóðar ofurfæðutegundir
4. Dregur úr bólgu í kringum augun: Ef þú vilt minnka bólguna sem er í kringum augu þín, settu þá tvo blauta tepaoka á augun og leggstu niður í um það vil 15 mínútur.
5. Minnkar astmaeinkenni: Andoxunarefnin í grænu te virkar á svipaða vegu og astmalyf. Reyndu því að drekka tvo bolla af grænu tei á hverjum degi til að halda astmaeinkennunum í skefjum.
6. Linar verki sem tengjast liðagigt: Ef þú drekkur fjóra bolla á dag af grænu tei, getur þú minnkað verkina sem fylgja liðagigt. Það er vegna bólgueyðandi áhrifa og andoxunarefnanna sem það inniheldur.
7. Gerir hjartað þitt heilbrigðara: Það er ekki bara vegna þess að í því eru andoxunarefni, heldur getur það lækkað kólestról og minnkað hættu á æðastíflum.
Sjá einnig: 3 ástæður fyrir því að drekka grænt te yfir hátíðarnar
Fólk sem drekkur bolla af grænu tei á hverjum degi eru í 46% minni hættu á því að fá þröngar æðar. Það fólk sem drekkur allt að þrjá bolla á dag lækkar hættuna á hjartaáfalli um 43 % og að deyja úr hjartaáfalli um 70% og getur það minnkað líkurnar á öðru hjartaáfalli. Rannsóknin var gerð á 1900 sjúklingum sem voru að jafna sig eftir hjartaáfall í Boston. 44 % fleiri sjúklingar lifðu ef þeir drukku grænt te en þeir sem drukku ekki teið.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.